Beint í leiðarkerfi vefsins.
Næsta útrás sem vofir yfir gæti vel verið á formi þekkingar og mannauðs – tapinu af þeirri útrás munum við hins vegar ekki deila með öðrum þjóðum.
Lesa meira...það er ekki hlutverk stjórna lífeyrissjóða að taka ákvarðanir um það hvaða fyrirtæki skuli lifa af á Íslandi, þ.e. hvert peningar úr fjárfestingarsjóði renni. Ábyrgð lífeyrissjóðanna gagnvart sínum umbjóðendum er þar einungis sú, að gera kröfu um að fjárfesting skili arði...
Lesa meiraEf það væri ekki svona sorglegt, væri í raun fyndið að ríkisstjórn, sem takast þarf á við 20% niðurskurð í opinberum rekstri og hagræða um leið risavöxtum skuldaböggum á herðum þjóðarinnar án þess að fella hana um koll, skuli hafa sett sér að höfuðmarkmiði að skapa hér norrænt velferðarsamfélag.
Lesa meiraSamkvæmt nýjustu fréttum er “fráleitt að skerða sjómannaafslátt þar sem hann er hluti af launum sjómanna” (http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item311214/).
Þetta er laukrétt ábending hjá talsmanni sjómanna.
Hún hittir hins vegar ekki allskostar í mark hjá mér sem talsmanni Bandalags háskólamanna á tímum þar sem einmitt er verið að afnema hluta launa minna félagsmanna vítt og breitt. Og engar líkur á að því linni.
Lesa meira