Pistlar formanns
Góð ábending frá sjómönnum
Samkvæmt nýjustu fréttum er “fráleitt að skerða sjómannaafslátt þar sem hann er hluti af launum sjómanna” (http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item311214/).
Þetta er laukrétt ábending hjá talsmanni sjómanna.
Hún hittir hins vegar ekki allskostar í mark hjá mér sem talsmanni Bandalags háskólamanna á tímum þar sem einmitt er verið að afnema hluta launa minna félagsmanna vítt og breitt. Og engar líkur á að því linni.
Sjálf ríkisstjórnin hefur fyrirskipað þessa launaskerðingu með “leiðarljósi” sem hún gaf út í vor í skýrslu um aðhald í ríkisrekstri.
Auk þess að afnema laun með beinum hætti með breytingum á ráðningarkjörum, þar sem m.a. yfirvinnutímar og akstursgreiðslur eru teknar burt, eru kjör launafólks skert með breytingum á vinnufyrirkomulagi, vaktakerfum og/eða starfshlutfalli.
Þannig hefur allt undangengið ár verið unnið markvisst að því að minnka kostnað við launagreiðslur til fólks yfir ákveðnum lágmörkum (400 þúsund krónur í heildarlaun eru viðmiðið hjá ríkinu og lægri tölur hjá sveitarfélögum).
BHM þiggur alla aðstoð, sjómanna eða annarra, við að benda á hversu fráleitt það er að afnema hluta launa fólks á erfiðleikatímum.
Við gerð stöðugleikasáttmála lýstu fulltrúar BHM vilja til að bíða með kröfur um kjarabætur til þess að hægt væri að lagfæra kjör þeirra tekjulægstu. Það er súrt í broti að fjármögnun þeirra kjarabóta og launahækkana á lægstu töxtum skuli þurfa að sækja með launalækkunum fólks úr okkar röðum.
Nú eru í farvatninu breytingar á skattkerfi landsins og ljóst að þörf fyrir aukna innheimtu til hins opinbera er mikil.
Á erfiðum tímum má álíta eðlilegt að skattahækkanir til að mæta slíkum kröfum séu lagaðar að aðstæðum ólíkra hópa og reynt að hlífa þeim sem hvað lökust kjör hafa.
Þannig mætti vel rökstyðja að hlífa lægstu hópunum við hækkunum en leggja þær frekar á ”breiðu bökin”.
Ef við hins vegar setjum hugsanlegar skattkerfisbreytingar í samhengi við yfirstandandi launatilfærsu milli tekjuhópa, getum við þá með góðu móti haldið því fram að nú séu aðstæður að lækka skattheimtu einhvers staðar í kerfinu?
