Pistlar formanns

Fæðingarorlof úti í mýri?

Ef það væri ekki svona sorglegt, væri í raun fyndið að ríkisstjórn, sem takast þarf á við 20% niðurskurð í opinberum rekstri og hagræða um leið risavöxtum skuldaböggum á herðum þjóðarinnar án þess að fella hana um koll, skuli hafa sett sér að höfuðmarkmiði að skapa hér norrænt velferðarsamfélag.

Að vísu var það táknrænt að hefja ríkisstjórnarsamstarfið í Norræna húsinu, en ýmsum gæti þótt það jafntáknrænt að umrætt hús skuli vera staðsett úti í mýri.

Hvernig fer það saman við norræna velferðarstefnu að skerða fæðingarorlof, hvort heldur sem er upphæð greiðslna eða tímalengd?  Þegar hefur tvívegis verið ráðist í lækkun greiðslna og nú stendur til að höggva í þriðja sinn í sama knérunn með útfærslu sem jafnvel ráðherranum sem leggur hana fram finnst léleg.

Fjölmargir aðilar í samfélaginu hafa lagt fram margvísleg rök gegn frekari skerðingu þessara réttinda, en sameiginlega stefið er þetta:  það er ekki hægt að skerða fæðingarorlofið frekar án þess að horfast í augu við það að um verulega afturför í réttindum er að ræða.  Því er mönnum jafnhollt að leggja málið einfaldlega þannig fram að til standi að fella úr gildi árangur sem náðst hefur á þessum vettvangi og taka meðvitað skref afturábak. 

Bent hefur verið á að skerðing í þriðja sinn ógnar jafnrétti kynjanna, heima fyrir og á vinnumarkaði.  Jafnréttislög tiltaka að allar stjórnvaldsákvarðanir skuli taka tillit til jafnrar stöðu kynjanna. 

Einnig hefur verið bent á  að nýfædd börn fái með nýju kerfi styttri tíma inni á heimilinu eftir fæðingu og fari fyrr í gæslu.  Það skapar meðal annars aukinn kostnað fyrir sveitarfélög.

Rætt hefur verið um málið út frá lýðheilsusjónarmiðum, til dæmis verði erfiðara að fylgja eftir stefnu varðandi brjóstagjöf og næringu ungbarna.

Síðast en ekki síst hefur verið minnt á það hversu aftarlega á merinni réttindi til fæðingarorlofs hafi verið hérlendis miðað við hin Norðurlöndin.  Nú standi til að eyðileggja það sem þó var talið framsækið við íslenskt kerfi, það er jafnan rétt móður og föður.

Stjórnvöld sem halda skerðingartillögum til streitu þrátt fyrir þessar ábendingar geta eflaust sagst vera að fylgja stefnu.  Hún er bara ekki norræn – og ekki heldur sérlega velferðarmiðuð.

Senda grein



Flýtival


banner7

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica