Spurt og svarað

Launatafla fyrir námsráðgjafa

Góðan daginn. Ég hóf störf sem námsráðgjafi í skóla í kópavogi í haust og var sett í BMH. En þannig liggur í því að launanefnd kópavogsbæjar neitar að setja mig í réttann launaflokk (námsráðgjafi 2 skv. launatöflu grunnskólakennara) af því ég er leikskólakennari í grunninn.

Hvernig horfir þetta við hjá ykkur, nú hafa leikskólakennarar fengið lögverndað starfsheiti og þar með kennararéttindi á yngsta stigi, get ég þá fengið launin mín leiðrétt þ.e. að ég geti látið launanefndina vita að ég fái menntun mína metna?
Hvar eru náms og starfsráðgjafa staðsettir í launatöflu hjá ykkur?

Svar: Þakka þér fyrir að hafa samband gegnum vef BHM.

Einstaklingar eru ekki félagar í BHM heldur aðildarfélögum BHM sem eru 24 talsins. Athugaðu hvaða stéttarfélagi þú tilheyrir og hafðu samband við þitt félag vegna spurningar um röðun í launatöflu. Þú ættir að finna upplýsingar um stéttarfélag þitt á launaseðili þínum eða með því að hafa samband við launaskrifstofuna.  Þú finnur upplýsingar um aðildarfélögin á vef BHM: http://bhm.is/adildarfelog/ . Sum félaganna reka þjónustuskrifstofur sem hafa má samband við en önnur gefa upp tölvupóstfang eða símanúmer fyrir spurningar.

Með kærri kveðju,

Ragnheiður Eiríksdóttir



Flýtival


banner4

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica