Hvernig kemst ég í miðstjórn?
Spurning: Ég hef mikinn áhuga á félagsstörfum og var að lesa mér til um miðstjórn BHM. Ég er félagi í Fræðagarði. Hvernig kemst ég í miðstjórn?
Svar: Takk kærlega fyrir spurninguna. Við fögnum áhuga þínum á miðstjórn. Seta í miðstjórn BHM er rétta leiðin til að hafa áhrif á starfsemi og áherslur bandalagsins. Í miðstjórn sitja formenn allra aðildarfélaga og að auki fulltrúar sem stjórnir félaganna hafa skipað. Fjöldi fulltrúa fer eftir fjölda félagsmanna.
Rétta leiðin inn í miðstjórn BHM er því í gegnum stjórn þíns félags. Ég hvet þig til að kynna þér lög Fræðagarðs og mæta svo á næsta boðaða fund til að byrja að mynda sambönd og komast inn í málin. Hlakka til að sjá þig í miðstjórn innnan tíðar!
Með kveðju,
Ragnheiður Eiríksdóttir
