Greiðslur til sjóða
Mótframlagið er það sama hjá öllum þannig að vinnuveitandi greiðir:
- Í orlofssjóð BHM 0,25% af heildarlaunum
- Í sjúkrasjóð BHM 1% af heildarlaunum
- Í fjölskyldu og styrktarsjóð 0,55% af heildarlaunum
- Í starfsmenntunarsjóð BHM 0,22% af dagvinnulaunum
- Í vísindasjóð hvers félags 1,5% af dagvinnulaunum
Ath. Sjúkrasjóður er einungis fyrir starfsmenn á almennum vinnumarkaði. Fjölskyldu og styrktarsjóður er fyrir launþega hjá ríki og opinberum stofnunum. Aldrei er greitt í báða þessa sjóði í einu.
Í kjarasamningum aðildarfélaga BHM og ríkisins 2008 var framlag vinnuveitanda í vísindasjóð aflagt. Framlag vinnuveitanda í vísindasjóði félagsmanna sem taka laun eftir samningum Launanefndar sveitarfélaga og Reykjavíkurborg er óbreytt. Aðild að vísindasjóð fyrir félagsmenn sem starfa á almennum markaði er valkvæð. Undantekning er að framlag ríkis í vísindasjóð hjúkrunarfræðinga er óbreytt.
Framlag ríkisstarfsmanna í starfsendurhæfingarsjóð 0,13% af heildarlaunum verður innheimt af LSR frá og með 1. maí 2009. Gjaldið skal leggja inn á reikning 0334-26-54545 kt. 711297-3919.
Samið hefur verið við lífeyrissjóði þannig að lífeyrissjóður viðkomandi launþega tekur við gjaldinu.
Allar greiðslur vegna félagsgjalda og iðgjalda í vísindasjóð, orlofssjóð, starfsmenntunarsjóð, fjölskyldu- og styrktarsjóð og sjúkrasjóð eiga að greiðast inn á reikning hjá Arion banka. Bankaupplýsingar: 0336-26-50000 kt. 630387-2569. Greiða má í einni upphæð en skilagreinar með fullnaðarupplýsingum (nákvæma sundurliðun gjalda) um viðkomandi launþega þurfa jafnframt að berast til Arion banka.
Senda má rafrænt með XML skjali á slóðina https://secure.bhm.is/bib/skilagreinar.asp annarsvegar (líkt og með skeytaskil til RSK) eða SALfærslu með tölvupósti á netfang skbib@bhm.is hinsvegar.
Heimilisfang fyrir skilagreinar sem berast í pósti:
Arion banki
Borgartún 19 v/BIB
105 Reykjavík
Netfang fyrir skilagreinar: skbib@bhm.is, Fax. 444 6699
