Beint í leiðarkerfi vefsins.
Félag íslenskra náttúrufræðinga leitar eftir starfsmanni í 50% starf móttöku- og skjalafulltrúa. Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2010. Sjá nánar.
Hjá ríkinu starfa að meðaltali 711 félagsmenn FÍN fyrstu 3 mánuði ársins. Þar af eru 521 félagsmaður í fullu starfi. Meðaldagvinnulaun félagsmanns okkar sem starfar hjá ríkinu og er í 100% starfshlutfalli fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 eru 383.014 kr.
Félag íslenskra náttúrufræðinga mun ekki loka skrifstofum sínum í sumar heldur munu formaður og framkvæmdastjóri skiptast á með viðveru á skrifstofu FÍN. Óhjákvæmilega getum við þurft að sinna erindum á opnunartíma og því biðjum við félagsmenn okkar að hafa samband við skrifstofuna og þannig ganga úr skugga um að einhver sé á staðnum, en skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16. Símsvörun er frá 8:00 - 18:00, ef annað hvort okkar er ekki við þá vinsamlegast skiljið eftir skilaboð og við hringjum eins fljótt og kostur er.