Desember- og orlofsuppbót

Desember- og orlofsuppbót

fyrir félagsmenn FÍN

Desemberuppbót:

Skv. gr. 1.7.2 í kjarasamningi: "Starfsmaður sem er við störf fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabílið 1. janúar til 31. október. Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkuum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaður gengt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann frá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili".

Skv. gr. 1.7.3 í kjarasamningi: "Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda desemberuppbót, miðað við við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs" sbr. 13.2 í kjarsamningi.

 

Desemberuppbót á samningstímanum verður sem hér segir:

 

Ríkið:

Á árinu 2007 kr. 41.800

Á árinu 2008 kr. 44.100

Á árinu 2009 - þar sem ekki hefur verið samið um desemberuppbót fyrir 2009 þá mun hún vera að lágmarki upphæð árið 2008, nema að komi tilkynning um annað.

 

Reykjavíkurborg:

Á árinu 2007 kr. 47.000

Á árinu 2008 kr. 48.000

Á árinu 2009 - þar sem ekki hefur verið samið um desemberuppbót fyrir 2009 þá mun hún vera að lágmarki upphæð árið 2008, nema að komi tilkynning um annað.

 

Launanefnd sveitarfélaga:

Á árinu 2008 kr. 72.365

Á árinu 2009 - þar sem ekki hefur verið samið um desemberuppbót fyrir 2009 þá mun hún vera að lágmarki upphæð árið 2008, nema að komi tilkynning um annað.

 

Almenni vinnumarkaður:

Vísað til ákvæða í ráðningasamningi

Orlofsuppbót:

Skv. gr. 4.2.2 í kjarasamningi: " Hinn fyrsta júní ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl næst á undan, fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Hafi starfsmaður látið af stöfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3 mánaða (13 vikur) samfellt starf á orlofsárinu, skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama gildir um ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða vegna fæðingarorlos allt að 6 mánuðum, sbr. 13.2. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á orlofsfé reiknast ekki orlofsfé.

Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.

Orlofsuppbót á samningstímanum verður sem hér segir:

Ríkið:

Á árinu 2007 kr. 23.000

Á árinu 2008 kr. 23.600

Á árinu 2009 kr. 25.200

Á árinu 2010 kr. 25.200 

Reykjavíkurborg:

Á árinu 2007 kr. 23.000

Á árinu 2008 kr. 23.600

Á árinu 2009 kr. 25.200

Á árinu 2010 - Ósamið er um hækkun orlofsuppbótar fyrir 2010 en hún verður að lágmarki kr. 25.200,- nema að komi tilkynning um annað.

Launanefnd sveitarfélaga:

Á árinu 2009 kr. 25.200

Á árinu 2010 - Ósamið er um hækkun orlofsuppbótar fyrir 2010 en hún verður að lágmarki kr. 25.200,- nema að komi tilkynning um annað.

Almenni vinnumarkaður

Vísað til ákvæða í ráðningasamningi






Útlit síðu:



Þetta vefsvæði byggir á Eplica