Um FÍN
Félag íslenskra náttúrufræðinga
Opnunartími skrifstofunnar er frá 9:00-12:00 og 13:00-16:00 alla virka daga.
Félagið er stéttarfélag þeirra launamanna sem hafa viðurkennt lokapróf í náttúrufræðum frá háskóla eða hliðstæðum menntastofnunum, sjá í lögum FÍN. Félagið er aðili að Bandalagi háskólamanna og tekur þátt í starfsemi þess.
Hlutverk FÍN er:
- að vinna að bættum kjörum félagsmanna og gæta hagsmuna þeirra í launa- og réttindamálum, meðal annars með aðild að Bandalagi háskólamanna - BHM. Félagið gerir kjarasamninga fyrir félagsmenn sína hjá hinu opinbera og við almenna vinnumarkaðinn.
- að stuðla að samvinnu og samheldni náttúrufræðinga á Íslandi.
- að veita félagsmönnum lögfræðiaðstoð.
- að veita félagsmönnum upplýsingar um launakjör.
