Saga
Saga Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN)
Stofnað 1955
Íslenskir náttúrufræðingar stofnuðu stéttarfélag 21. febrúar 1955. Í upphafi hét félagið Hagsmunafélag náttúrufræðinga, en á aðalfundi 1960 var nafni félagsins breytt í Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN). Á fyrstu árum félagsins voru félagar á bilinu 15-20, en í lok apríl 1988 voru þeir 444 og í dag árið 2008 eru virkir félagsmenn 1255.
Félag íslenskra náttúrufræðinga starfar eingöngu sem stéttarfélag náttúrufræðinga, en félagsmenn sinna faglegum málum í hinum ýmsu fagfélögum.
FÍN er aðilli að Bandalagi háskólamanna (BHM) sem stjórnar launa- og réttindabaráttu háskólamenntaðra starfsmanna hjá bæði opinbera- og almenna vinnumarkaðinum.
