Talsmenn BHM
Gudlaug_Kristjansdottir_1

Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM

 

Guðlaug Kristjánsdóttir var kjörin formaður Bandalags háskólamanna á aðalfundi í maí 2008. Hún starfaði áður, frá 2006, sem fageiningarstjóri á heila-, tauga- og æðaskurðdeild Landsspítala Háskólasjúkrahúss (LSH).

Stundakennari í sjúkraþjálfunarfræði við Háskóla Íslands á árunum 2006-2008, sjúkraþjálfari á ýmsum deildum LSH frá 2001-2006 og við Dagvist og endurhæfingarmiðstöð MS-sjúklinga 1998-2001. Þá starfaði hún hjá Sjúkraþjálfaranum ehf. í Hafnarfirði árið 1999.

Guðlaug lauk BS-prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1998 og prófi frá Leiðsöguskóla Íslands 1994. Hún hefur sótt mörg námskeið og ráðstefnur tengdar fagi sínu.

Guðlaug hefur gegnt fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum. Hún á sæti í samstarfsnefnd við gerð stofnanasamnings á LSH fyrir hönd Stéttarfélags sjúkraþjálfara, SSÞ.  Frá árinu 2005 hefur hún verið fulltrúi SSÞ í miðstjórn BHM og frá árinu 2005 hefur hún gegnt formennsku í stjórn og samninganefnd (síðar kjaranefnd) Stéttarfélags sjúkraþjálfara. 

Guðlaug er 35 ára gömul, gift Kristni Magnússyni, sjúkraþjálfara og eiga þau þrjá syni.



Flýtival


banner4

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica