Lög

Lög Fræðagarðs

The Union of University Graduates

I KAFLI. Nafn félagsins og tilgangur

1. gr.

Heiti félagsins er Fræðagarður, skammstafað FRG. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Félagssvæðið tekur til landsins alls. Félagið er aðili að Bandalagi háskólamanna. Félagið skiptist í deildir, sem huga að sértækum hagsmunum faghópa, sem eiga aðild að félaginu

2. gr.

Hlutverk félagsins er:

  1. að fara með samningsumboð fyrir félagsmenn sína og semja um kaup og kjör þeirra
  2. að standa vörð um kjaraleg réttindi félagsmanna
  3. að stuðla að samstarfi við innlend og erlend stéttarfélög
  4. að fræða félagsmenn um réttindi þeirra og skyldur
  5. að vinna að öryggi félagsmanna á vinnustað  

II KAFLI. Réttindi og skyldur félagsmanna

3. gr.

Fullgildir félagar geta þeir orðið sem lokið hafa BA eða BS prófi, eða ígildi þess, frá viðurkenndum háskóla. Í félaginu er gert ráð fyrir fjölbreyttum hópi háskólamanna, m.a. þeim sem ekki geta orðið félagsmenn í öðru   aðildarfélagi innan Bandalags háskólamanna- BHM.

Háskólanemar sem lokið hafa tveimur námsárum af háskólanámi geta orðið félagar með takmörkuðum réttindum og skyldum. Nefnast þeir ungfélagar.

Ungfélögum er heimil fundarseta með málfrelsi og tillögurétt. Þeir hafa ekki önnur réttindi í félaginu. Þeir eru gjaldfrjálsir þegar þeir eru í námi. Hver háskólanemi á rétt á ungfélagaaðild að félaginu í samtals fjögur ár.

Atkvæðisrétt á fundum og rétt til setu í stjórn hafa þeir sem eru fullgildir félagar.

4. gr.

Umsóknir um aðild skulu vera skriflegar og afrit af prófskírteini skal fylgja umsókninni. Stjórn félagsins fjallar um aðildarumsóknir.

5. gr.
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og taka gildi þremur mánuðum eftir að hún berst félagsstjórn. Úrsögn skal þó ekki taka gildi berist hún eftir að vinnustöðvun hefur verið boðuð hjá vinnuveitanda viðkomandi félagsmanns eða á meðan á vinnustöðvun stendur.

6. gr.

Félagsgjöld skal ákveða á aðalfundi ár hvert.

Hver sá félagi sem ekki hefur greitt tilskilin félagsgjöld í samfellt 3 mánuði fellur af félagaskrá.

Hafi greiðandi félagsgjalds ekki sótt formlega um aðild að félaginu, innan tveggja ára frá því er fyrsta greiðsla berst félaginu, getur stjórn félagsins hafnað móttöku frekari greiðslu af hálfu greiðanda. Ekki er um endurgreiðslu á þegar mótteknum félagsgjöldum að ræða af hálfu félagsins við slíkar aðstæður.

III KAFLI. Félagsfundir og stjórn

7. gr.

Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málum félagsins. Aðalfund skal halda í febrúar ár hvert og skal boðað til hans með a.m.k. 2ja vikna fyrirvara en heimilt er að flýta aðalfundi ef þess er talin þörf. Fjárhagsár skal miðast við almanaksár. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað.

Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:

  1. skýrsla stjórnar
  2. reikningar félagsins lagðir fram
  3. lagabreytingar
  4. fjárhagsáætlun og ákvörðum um félagsgjöld
  5. kosning stjórnar
  6. kosning skoðunarmanna reikninga félagsins
  7. kosning í nefndir og önnur trúnaðarstörf
  8. önnur mál

8. gr .

Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum, formanni,varaformanni,gjaldkera, ritara og einum meðstjórnanda og skulu þeir kosnir á aðalfundi til eins árs í senn. Auk þeirra skal kjósa einn varamann.

Formaður skal kosinn sérstaklega á aðalfundi, en að öðru leyti skiptir stjórn með sér verkum.

Formaður og varaformaður félagsins sitja í miðstjórn Bandalags háskólamanna-BHM.

Stjórn félagsins eða til þess kjörin nefnd, samninganefnd, fer með umboð þess til kjarasamninga.

9. gr.

Skoðunarmenn ársreikninga eru tveir, og einn til vara. Þeir skulu kjörnir á aðalfundi til eins árs í senn. Við kjör skoðunarmanna ársreikninga eru stjórnarmenn ekki gjaldgengir.

10. gr .

Félagsstjórn heldur fund, þegar formaður ákveður eða einhver stjórnarmanna óskar.

Formaður stýrir fundum. Ritari skráir gerðir stjórnarinnar í fundargerð.

11.gr.

Trúnaðarmenn skulu starfa á vegum félagsins, sbr. lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986 og lög um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938. Þeir skipa trúnaðarmannaráð sem er stjórn og/eða samninganefnd félagsins til aðstoðar við mótun samningastefnu og annast eftirlit með framkvæmd kjarasamninga.

12.gr.

Félagsfundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Skulu þeir boðaðir með tryggilegum hætti. Heimild til atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls, kröfugerðir félagsins og kjarasamningar skulu hljóta samþykki minnst fjórðungs þeirra félagsmanna sem framangreind atriði taka til.

13.gr.

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi með 2/3 greiddra atkvæða. Tillögur til lagabreytinga skulu kynntar í fundarboði.

IV. KAFLI. Lokaákvæði

14. gr.

Félaginu verður því aðeins slitið, að félagsslitin séu samþykkt á sama hátt og gildir um lagabreytingar. Félagsslitafundur tekur ákvörðun um ráðstöfun eigna félagsins.

Ákvæði til bráðabirgða:

Þau félög, sem ganga í Fræðagarð á árinu 2008 teljast til stofnfélaga.

Frá stofnfundi, 18. júní 2008 til aðalfundar 2009 tekur fulltrúaráð, sem í sitja kjörnir stjórnarmenn stofnfélaga, allar ákvarðanir varðandi stefnumótandi atriði í starfsemi félagsins. Fulltrúaráðið skiptir með sér verkum.

Svo samþykkt á stofnfundi 18. júní 2008.

 

 

 


Útlit síðu:



Þetta vefsvæði byggir á Eplica