BHM býður aðalfundarfulltrúa velkomna
Aðalfundur Bandalags háskólamanna, 29. apríl 2009
Menntun og velferð – hvernig reiðir háskólamönnum af í kreppu?
Aðalfundur Bandalags háskólamanna verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl, kl. 9-17:15 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6.
Menntun og velferð
Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Menntun og velferð, hugtök sem brenna á háskólamönnum nú sem aldrei fyrr í kjölfar efnahagshruns og stórfelldra breytinga á vinnumarkaði.
Auk hefðbundinna aðalfundastarfa mun aðalfundur BHM fjalla sérstaklega um menntun, velferð og stöðu háskólamanna í samfélaginu ásamt nýjum áskorunum sem hópurinn stendur nú frammi fyrir í breyttu efnahagsástandi.
Menntun – hagur þjóðar?
Félagsmenn 24 aðildarfélaga BHM tilheyra flestir meðaltekjuhópum og eiga það sameiginlegt að hafa varið drjúgum hluta fullorðinsáranna til að sækja sér menntun og sérþekkingu á ýmsum sviðum. Á umbrotatímum liðinna mánaða hafa ýmsir ráðamenn sagt góða menntun þjóðarinnar vera lykilatriði í því að koma þjóðinni upp úr þeirri efnahagskreppu sem nú ríkir. Bandalag háskólamanna vill brýna fyrir ráðamönnum að vaka yfir þessum eiginleika þjóðarinnar og gæta þess að hlutur háskólamenntaðra á vinnumarkaði verði hér áfram til fyrirmyndar.
Á tímum atvinnuleysis skapast hætta á fólksflótta frá landinu, sem um leið getur reynst atgervisflótti. Því er brýnt að huga að hlut háskólamenntaðra í vinnumarkaðsúrræðum.
