Fréttir

Nýr félagsdómur

 

Niðurstaðan í félagsdómsmáli nr. 5/2009: Dómur frá 24. apríl 2009 er í stuttu máli sú, að viðurkennt var, að ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, sem tilkynnt var starfsmanni, sjúkraliða á Víðihlíð í Grindavík, um að hætta keyrslu hennar til og frá Víðihlíð á vegum stofnunarinnar auk greiðslna fyrir aksturstíma, sé andstæð grein 5.4.1 í kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs sem hljóðar svo:

„Vinni starfsmaður fjarri leiðum almenningsvagna skal stofnunin sjá honum fyrir ferðum til og frá vinnustað eða greiða ferðakostnað.  Slíkar ferðir teljast til vinnutíma, að því er nemur flutningstíma frá mörkum næsta aðalíbúðarsvæðis til vinnustaðar.“

Hægt er að lesa dóminn í heild sinni hér

Apríl 09 EG



Flýtival


banner10

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica