Álit umboðsmanns Alþingis: tímabundin ráðning samræmdist ekki meginreglu
Nýtt álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 5356/2008 liggur fyrir. Í því máli leitaði A til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir ákvörðun skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík um að endurnýja ekki ráðningu hennar við skólann. Jafnframt gerði A athugasemdir við skýringar skólans til umboðsmanns sem sneru að ráðningu í störf tveggja sögukennara við skólann veturinn 2008-2009 og þá einkum að annar þeirra hefði verið ráðinn í þá stöðu sem hún hefði áður gegnt án auglýsingar. Í kvörtun A kom fram að hún hefði starfað við kennslu í sögu og fleiri greinum hjá skólanum í fjögur ár á grundvelli tímabundinna ráðningarsamninga. Vorið 2008 hefði verið ákveðið að endurnýja ekki ráðningu A. Jafnframt hefði laust starf verið auglýst til umsóknar við skólann sem A hefði sótt um en ekki hlotið.
Mjög áhugavert er að lesa það sem umboðsmaður segir í áliti sínu varðandi athugun á þeim sjónarmiðum sem lágu til grundvallar starfslokum A vorið 2008. Með vísan til réttmætisreglunnar í íslenskum stjórnsýslurétti um að ákvarðanir og athafnir í stjórnsýslu skyldu reistar á málefnalegum sjónarmiðum álítur umboðsmaður:
„... að af gögnum málsins yrði ekki dregin önnur ályktun en að það sjónarmið, að frekari ráðning A til starfa við skólann yrði að vera ótímabundin, hefði haft verulega þýðingu fyrir þá ákvörðun að ráða A ekki í þau störf sem auglýst voru í apríl 2008 og þar með ljúka ráðningarsambandi hennar við skólann. Umboðsmaður taldi að almennt yrði ekki á það fallist að það gæti talist málefnalegt að ljá því sjónarmiði verulegt vægi við ráðningar í opinber störf að tiltekinn umsækjandi væri þegar í tímabundnu ráðningarsambandi við opinbera stofnun sem hefði varað samfellt í tvö ár og því yrði frekari ráðning hans í starf að vera ótímabundin. Lagareglur um tímabundnar ráðningar gætu hins vegar leitt til þess að teldist umsækjandi sem þegar væri í tímabundnu ráðningarsambandi hæfastur umsækjenda bæri að gera við hann ótímabundinn ráðningarsamning, krefðist hann þess, jafnvel þótt í starfi fælist að rækja tímabundin verkefni. Væri ekki um frekari verkefni að ræða hjá opinberri stofnun þegar slíku verkefni lyki yrði að fara með starfslok hlutaðeigandi starfsmanns með þeim hætti sem mælt væri fyrir um í lögum um uppsögn ótímabundinna ráðningarsamninga.“
Umboðsmaður benti á í lokin að rétt væri að Kvennaskólinn í Reykjavík tæki afstöðu til þess hvort og þá hvernig bætt yrði úr þeim annmörkum sem voru á meðferð málsins og afleiðingum þeirra gagnvart A. Jafnframt beindi hann þeim tilmælum til skólans að taka framvegis mið af þeim sjónarmiðum sem rakin væru í álitinu við veitingu kennarastarfa við skólann, gerð ráðningarsamninga við kennara og birtingu auglýsinga um laus störf við skólann.
Hægt er að lesa álit umboðsmanns Alþingis hér
Maí 09/EG
