Fréttir

BHM bregst við áformum um brot á kjarasamningum

 

 Um ferðakostnað innanlands er sagt að hann skuli einungis greiddur samkvæmt reikningi, en það er meginregla kjarasamninga, en síðan segir: „Það skal tekið skýrt fram að ferðakostnaður starfsmanna fari ekki umfram viðmið ferðakostnaðarnefndar.“ Þetta skilyrði er ekki í samræmi við gildandi samninga. Þar er meginreglan eftirfarandi: Kostnaður vegna ferðalaga innanlands á vegum vinnuveitanda skal greiðast eftir reikningi enda fylgi fullnægjandi frumgögn.  Sama gildir ef hluti vinnudags er unninn svo langt frá föstum vinnustað að starfsmaður þarf að kaupa sér fæði utan heimilis eða fasts vinnustaðar.

Í samningum er ekkert þak sett á upphæð reikninga. Það ræðst af aðstæðum hversu hár þessi kostnaður verður og fráleitt að mat ferðakostnaðarnefndar á meðal fæðis- og gistikostnaði sé notað sem hámark. Í því felst að starfsmönnum er í sumum tilvikum ætlað að greiða kostnað sem vinnuveitanda ber samkvæmt samningum.

BHM mótmælir þessum áformum og krefst þess að frá þeim verði fallið og kjarasamningar virtir.

Í umræddu minnisblaði er fjallað um leiðir annars vegar ráðuneyta og hins vegar stofnana ríkisins til að draga úr launakostnaði, meðal annars með lækkun heildarlauna.  Í því sambandi minnir Bandalag háskólamanna á þá staðreynd, sem fjármálaráðherra kynnti á Alþingi í vor, að yfirvinnulaun ríkisstarfsmanna lækkuðu á tímabilinu september 2008 til mars 2009 um 23%.  Einnig er áréttað að fyrirmæli til ráðuneyta um lækkun launa umfram 400.000 kr. um 3-10% eiga eingöngu við um ráðuneytin og ber ekki að yfirfæra á stofnanir ríkisins. Margar stofnanir ríkisins hafa þegar dregið úr launakostnaði sínum mun meira en þessu nemur með kerfisbreytingum.



Flýtival


banner8

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica