Fréttir

BHM mótmælir órökstuddum áætlunum um skerðingu kjara

stjórnendum stofnana ber ekki að túlka leiðarljós aðhaldsaðgerða sem fyrirmæli

Samdráttur í rekstri getur orðið með ólíkum hætti og þarf ekki í öllum tilfellum að beinast að kjörum starfsmanna.

Stofnun sem er innan marka fjárlaga þarf þar af leiðandi ekki og á ekki að grípa til þeirra kjaraskerðingarúrræða sem tíunduð eru í leiðarljósi ríkisstjórnarinnar.

Stofnun sem þarf að draga saman rekstur hlýtur að leita allra færra leiða til sparnaðar og velja þá sem síst bitnar á þjónustunni sem stofnunin veitir og er minnst íþyngjandi fyrir starfsmenn hennar.

Stofnun sem kemst að þeirri niðurstöðu að kjaraskerðing starfsmanna sé nauðsynleg til að ná endum saman, hlýtur að rökstyðja þá ályktun og haga aðhaldsaðgerðum í samræmi við umfang eigin rekstrarvanda.

Því mótmælir BHM órökstuddum áætlunum um skerðingu kjara og telur ekki nægilegt að vísa til leiðarljósa ríkisstjórnarinnar, heldur þurfi ætíð að vera sýnilegt hvers vegna og hvernig kjaraskerðingu sé ætlað að mæta rekstrarvanda, hvert umfang hans sé og hversu víðtækar kjaraaðgerðir þurfi þar af leiðandi að vera.

BHM ítrekar að leiðarljós ríkisstjórnar kveða á um að taka skuli tillit til þegar fram kominna kjaraskerðinga innan ráðuneyta og stofnana og minnir á að nú þegar hafa yfirvinnugreiðslur hjá ríki lækkað um að minnsta kosti 20% frá síðasta ári.

Það er afstaða BHM að í þeim tilfellum þar sem yfirvinnugreiðslur skulu skertar, þurfi samsvarandi skerðing vinnuframlags að koma fram.  Það sé með öðrum orðum ekki hægt að krefja starfsmann um vinnuframlag sem ekki stendur til að greiða fyrir.

BHM hvetur launamenn til árvekni um réttmæti skerðinga sem í vændum kunna að vera og til að vera í góðum samskiptum við stéttarfélag sitt.

 

Nánari upplýsingar veita:

Guðlaug Kristjánsdóttir, Formaður BHM

gudlaug@bhm.is

s. 899 2873

 

Stefán Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri BHM

stefan@bhm.is

s. 821 9310

 



Flýtival


banner10

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica