Fréttir
Mynd-Margret-G

Ráðgjafi á sviði starfsendurhæfingar ráðinn til starfa hjá BHM

Verkefni ráðgjafa er að hitta félagsmenn sem vegna veikinda eða slysa eru frá vinnu eða eiga á hættu að hverfa frá vinnu vegna veikinda.

Til að sinna félagsmönnum aðildarfélaga BHM hefur Margrét Gunnarsdóttir verið ráðin sem ráðgjafi. Hún er með aðstöðu í Borgartúni 6. Hægt er að hafa samband í síma 588 8396 eða með tölvupósti : margretg@bhm.is

Ráðgjöfin  tekur mið af aðstæðum hvers og eins, með það markmið að viðkomandi einstaklingur  nái sem bestri færni og geti snúið til starfa á ný. Lögð er áhersla á jákvæða nálgun og gott samstarf. Ráðgjöfin er félagsmönnum að kostnaðarlausu.

Þjónusta ráðgjafa  felst m.a. í :

  • Mati á starfshæfni sem tekur mið af  heilsufarslegum jafnt sem félagslegum þáttum.
  • Aðstoð við gerð og eftirfylgni einstaklingsbundinnar virkniáætlunar.
  • Leiðbeiningum um réttindi, greiðslur og ýmsa þjónustu.
  • Aðstoð frá sérfræðingum, svo sem sálfræðingum, iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum, læknum, félagsráðgjöfum, náms- og starfsráðgjöfum og fleirum.
  • Samstarfi milli einstaklings, atvinnurekanda hans og fagaðila til að auka starfshæfni starfsmanns.
  • Kynningum og samstarfi við vinnumarkaðinn, stéttarfélög, trúnaðarmenn og heilbrigðisþjónustu um starfsendurhæfingu og möguleg úrræði.

Rannsóknir sýna að mikilvægt er að nýta tímann í veikindaleyfi á uppbyggilegan hátt eftir getu til að viðhalda og ná sem bestri heilsu og færni á ný. Endurhæfingu er best að hefja sem fyrst í veikindaferlinu og getur þá verið gott að fá ráðgjöf og stuðning sérhæfðra fagaðila til að ná sem bestum árangri.

Kynningarbæklingur um Starfsendurhæfingarsjóð: http://www.virk.is/static/files/kynningarefni/VIRK_fjorbl._mars.2009.pdf

Dæmi um feril vegna endurhæfingar:  http://www.virk.is/static/files/Ferill_Endurhaefingarsj-6.pdf



Flýtival


banner7

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica