Fréttir
Miðstjórn BHM ályktar um skattkerfisbreytingar og kjaraþróun millitekjuhópa
BHM telur eðlilegt á aðhaldstímum að sérkjör einstakra hópa hvað varðar skattlagningu séu endurskoðuð og jafnræðis þannig gætt.
BHM styður hækkun fjármagnstekjuskatts og leggur til að skattmeðferð fyrirtækja verði breytt á þann hátt að miðað verði við meðaltalsprósentu hjá OECD ríkjum (26,6% á móti 15% hér).
Ennfremur hvetur BHM til þess að innheimta skatta verði efld og ráðist verði gegn tvöföldu skattkerfi sem viðgengst í landinu í tengslum við einkahlutafélög.
Nánari upplýsingar veita:
Guðlaug Kristjánsdóttir, Formaður BHM
s. 899 2873
Stefán Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri BHM
s. 821 9310
