Fréttir

BHM efast um að aðgerðir stjórnvalda séu í samræmi við gildandi réttarreglur

 

BHM mótmælir því harðlega að stjórnvöld geri kröfur til aðgerða hjá stofnunum og fyrirtækjum sem í einstökum tilvikum er ekki unnt að mæta án þess að brjóta annað hvort kjarasamninga eða lög.

BHM lýsir áhyggjum  af vinnubrögðum sem vart hefur orðið við meðal forstöðumanna stofnana og fyrirtækja ríkisins, þar sem lagt er að starfsmönnum að samþykkja kjaraskerðingar og falla frá lögbundnum og samningsbundnum réttindum sem verið hafa í gildi á íslenskum vinnumarkaði um áratuga skeið undir því yfirskini að slíkt forði þyngri aðgerðum.  Það er óviðunandi að ástand á vinnumarkaði sé misnotað til að þvinga starfsmenn til að afsala sér samningsbundnum rétti.

Stjórn BHM hefur sent forstöðumönnum stofnana og fyrirtækja ríkisins bréf þessa efnis og hvetur til þess að allar áætlanir um kjaraskerðandi aðgerðir verði endurskoðaðar.

  

Nánari upplýsingar veita:

Guðlaug Kristjánsdóttir, Formaður BHM

gudlaug@bhm.is

s. 899 2873

 

Stefán Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri BHM

stefan@bhm.is

s. 821 9310



Flýtival


banner2

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica