Fréttir

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins láni ekki til fyrirtækja með lélegt lánshæfismat

Miðstjórn BHM ályktar um fjárfestingar lífeyrissjóða

Miðstjórn Bandalags háskólamanna beinir því að gefnu tilefni til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins að sjóðurinn gæti varúðar í fjárfestingum og láni ekki til fyrirtækja með lélegt lánshæfismat.

Sjóðurinn varð líkt og aðrir lífeyrissjóðir fyrir miklu tjóni við fall íslenska bankakerfisins og er það víti til varnaðar. Mikilvægt er að sjóðurinn setji sér skýrar vinnureglur við fjárfestingu þar sem byggt sé á öryggi fjárfestinga, ávöxtun, jafnréttissjónarmiðum  og samfélagslegu mikilvægi.

 

 

 

 

 



Flýtival


banner3

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica