Hagsmunafélag stundakennara á háskólastigi stofnað
HAGSTUND – hagsmunafélag stundakennara á háskólastigi var stofnað þann 4. nóvember síðastliðinn. Hlutverk félagsins er m.a. að vinna að bættum kjörum og réttindum þeirra sem sinna stundakennslu á háskólastigi og efla samheldni þeirra óháð fræðasviðum. Stundakennararar á háskólastigi er fjölmennur en margbreytilegur hópur. Sem dæmi sinntu tæplega 2.200 einstaklingar stundakennslu við Háskóla Íslands árið 2008. HAGSTUND er ætlað að vera málsvari þessa hóps gagnvart háskólayfirvöldum og hafa forystu um endurskoðun á starfsumhverfi stundakennara.
Áhugasamir geta skráð sig í félagið með því að senda póst með nafni og kennitölu á netfangið: hagstund@gmail.com. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins: http://www.kaninka.net/hagstund/
