Fréttir

Ármann Snævarr látinn

Fyrsti formaður BHM

Ármann Snævarr prófessor, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands og hæstaréttardómari lést 15. febrúar sl.  á 91. aldursári.

Ármann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1944 og stundaði framhaldsnám meðal annars við Kaupmannahafnarháskóla og Harvard Law School í Cambridge.

Ármann var virtur og afkastamikill fræðimaður á sviði lögfræði. Hann varð heiðursdoktor við HÍ og einnig við háskóla í Uppsölum, Ósló, Kaupmannahöfn, Helsinki og Ohio.

Ármann tók við prófessorsembætti við Háskóla Íslands 1948 og gegndi því starfi til 1972. Hann varð rektor Hákólann frá 1960 til 1969. Hann var skipaður hæstaréttardómari 1972 og gegndi því starfi til 1984.

Ármann átti frumkvæði að stofnun Bandalags háskólamanna og var fyrsti formaður þess, frá 1958 til 1963.

Eftirlifandi eiginkona Ármanns Snævarr er Valborg Sigurðardóttir fyrrverandi skólastjóri, börn þeirra eru fimm.

Bandalag háskólamanna minnist Ármanns Snævarr með virðingu, vinsemd og þökk. 
 

 

 

 



Flýtival


banner10

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica