Beint í leiðarkerfi vefsins.
Félagsmönnum í FÍF, KVH, SBU, SL og Fræðagarði á Norðurlandi býðst þátttaka í morgunfundi með Ernu Guðmundsdóttur lögfræðingi BHM fimmtudaginn 26. janúar 2012 frá kl. 9:00-11:30. Erna mun fjalla um þær breytingar sem gerðar voru víða á kjörum á árunum 2008-2011 og tekst á við spurningu hvort hægt sé að krefja vinnuveitendur nú um að draga þær breytingar til baka.
Bandalags háskólamanna fyrir vorönn 2012 liggur fyrir.
Í boði eru ýmiss konar námskeið fyrir félagsmenn og opnað verður fyrir skráningu á námskeiðin 3. janúar 2012.
Frá og með næstu áramótum lækkar frádráttarbært iðgjald launþega í séreignarlífeyrissjóði úr 4% í 2% af heildarlaunum. Launþegar þurfa ekki að breyta núgildandi samningum um séreignarsparnað heldur ber launagreiðendum að tryggja að iðgjaldið lækki niður í 2%. Sjá nánar tilkynningu frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
Félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögum eiga rétt á úthlutun úr vísindasjóði síns stéttarfélags. Ekki þarf lengur að sækja sérstaklega um úthlutun og fá allir félagsmenn sem greitt hefur verið fyrir í vísindasjóð tilkynningu í pósti þegar greiðslan hefur farið fram. Framlag vinnuveitanda í vísindasjóð fyrir félagsmenn hjá ríki var aflagt í kjarasamningum 2008. Nánar um úthlutunarmánuð og styrkupphæð.
BHM gerir alvarlegar athugasemdir við ummæli innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar, í ræðustól Alþingis í gær (24/1). Þar lét ráðherra að því liggja að starfsmenn stjórnarráðsins væru háðir eldvatni, ferðalögum til Brussel, hóteldvöl og dagpeningum.
Slík ummæli ráðherra, um starfsfólk sitt og stjórnarráðsins alls, eru forkastanleg og með ólíkindum að fyrrum leiðtogi opinberra starfsmanna til áratuga láti þau frá sér fara.
BHM mótmælir þessari aðför að faglegum heilindum starfsfólks stjórnsýslunnar og krefst þess að Ögmundur biðji starfsfólk sitt afsökunar á ómaklegum ásökunum. Lesa meiraAlls mættu rúmlega 400 manns til að hlýða á þau erindi sem þar voru flutt.
Lesa meira