Deiglan
Vísindasjóðir
Ath. tilkynning vegna kjarasamninga 2008
Í kjarasamningum aðildarfélaga HugGarðs og ríkisins 2008 var framlag vinnuveitanda í vísindasjóð aflagt með þeim hætti að launatafla var hækkuð um 2,0%, vegna breytinga á vísindasjóðsframlagi. Framlag vinnuveitanda í vísindasjóði félagsmanna sem taka laun eftir samningum Launanefndar sveitarfélaga og Reykjavíkurborg er óbreytt. Aðild að vísindasjóð fyrir félagsmenn sem starfa á almennum markaði er valkvæð.
Hverjir eiga rétt á úthlutun úr vísindasjóði?
Allir fullgildir félagar, sem greitt hefur verið fyrir í sjóðinn í a.m.k. 4 mánuði á hverju almanaksári, eiga rétt á styrk úr sjóðnum. Á almenna vinnumarkaðinum er aðild að vísindasjóði valkvæð en greitt er fyrir alla félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögum. Framlag vinnuveitanda í vísindasjóð fyrir félagsmenn hjá ríkinu var aflagt í kjarasamningum 2008.
Þeir sem ekki sækja um styrk fá ekki úthlutað úr vísindasjóði. Þetta gildir þó ekki um félagsmenn í SL og KVH og þurfa þeir ekki að sækja um úthlutun.
Styrkupphæð
Styrkupphæðin er miðuð við 100% starf á tímabilinu 1. janúar 2009 - 31. desember 2009, nema hjá Stéttarfélagi lögfræðinga og Stéttarfélagi bókasafns- og upplýsingafræðinga þar sem viðmiðunartímabilið er 1. nóvember 2008 - 31. október 2009.
Þeir sem voru í hlutastarfi og/eða í starfi hluta úr ári fá greitt í samræmi við það.
Úthlutunarreglur og styrkupphæðir eru mismunandi eftir sjóðum félaga:
Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga
Sótt um í nóvember og allir sem greitt hefur verið fyrir í sjóðinn og sækja um styrk fá úthlutað. Úthlutað er úr sjóðnum í desember. Umsóknarfrestur vegna styrks fyrir árið 2009 var til 9. desember 2009, sjá nánar á vefsvæði SBU. Fullur styrkur fyrir árið 2009 nam kr. 63.621 kr. fyrir félagsmenn hjá Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum. Vísindasjóður var aflagður í kjarasamningum árið 2008 við ríkið, þ.e. félagsmenn sem starfa hjá ríkinu geta ekki sótt um styrk vegna ársins 2009 en áfram er greitt fyrir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögum.
Stéttarfélag lögfræðinga
Allir sem greitt er fyrir í sjóðinn fá úthlutað. Úthlutað er úr sjóðnum í desember. Úthlutun fyrir árið 2009 er lokið og upphæð styrks er í samræmi við innborgun í sjóðinn. Vísindasjóður var aflagður í kjarasamningum árið 2008 við ríkið, þ.e. félagsmenn sem starfa hjá ríkinu geta ekki sótt um styrk vegna ársins 2009 en áfram er greitt fyrir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögum. Sjá nánar reglur sjóðsins >>
Félag íslenskra félagsvísindamanna
Sótt er um í janúar og allir sem greitt hefur verið fyrir í sjóðinn og sækja um styrk fá úthlutað. Úthlutun vegna 2009 lauk 30. janúar 2010 og nam fullur styrkur kr. 70.677. Vísindasjóður var aflagður í kjarasamningum árið 2008 við ríkið, þ.e. félagsmenn sem starfa hjá ríkinu geta ekki sótt um styrk vegna ársins 2009 en áfram er greitt fyrir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögum. Sjá nánar reglur sjóðsins >>
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Allir sem greitt er fyrir í sjóðinn fá úthlutað. Úthlutað er úr sjóðnum í febrúar. Úthlutun fyrir árið 2009 er lokið og upphæð styrks er í samræmi við innborgun í sjóðinn. Vísindasjóður var aflagður í kjarasamningum árið 2008 við ríkið, þ.e. félagsmenn sem starfa hjá ríkinu geta ekki sótt um styrk vegna ársins 2009 en áfram er greitt fyrir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögum.Sjá nánar reglur sjóðsins >>
Fræðagarður (áður Félag íslenskra fræða - kjaradeild og Útgarður)
Sótt er um styrk í janúar og allir sem greitt hefur verið fyrir í sjóðinn og sækja um styrk fá úthlutað. Fullur styrkur árið 2009 nam kr. 79.947. Umsóknarfrestur um styrk var til 19. janúar 2010 vegna ársins 2009. Vísindasjóður var aflagður í kjarasamningum árið 2008 við ríkið, þ.e. félagsmenn sem starfa hjá ríkinu geta ekki sótt um styrk vegna ársins 2009 en áfram er greitt fyrir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögum. Sjá nánar reglur sjóðsins >>
Skattaleg meðferð greiðslna úr vísindasjóði
Styrkurinn er forskráður á skattframtal styrkþega og er talinn fram til skatts eins og aðrar tekjur. Ef félagsmenn hafa nótur, sem skatturinn tekur gildar sem kostnað á móti styrknum, þá skal skila þeim með skattframtali. Annars greiðist fullur tekjuskattur af styrknum. Til að fá upplýsingar um hvaða nótur eru teknar gildar skal félagsmönnum bent á að snúa sér til viðkomandi skattstofu eða leita upplýsinga á vef rikisskattstjóra
Allir félagsmenn, sem greitt hefur verið fyrir í vísindasjóð, fá senda tilkynningu í pósti þegar opnað hefur verið fyrir umsóknir í vísindasjóð.
