Fréttir

Námskeið á vegum BHM haustið 2010 - 1.9.2010

Félagsmönnum stendur til boða þátttaka í ýmsum námskeiðum á vegum BHM haustið 2010.  Um er að ræða námskeið um einelti á vinnustöðum, greinaskrif, trúnaðarmannanámskeið o.fl.  Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna á heimasíðu BHM.

Lesa meira
 

Dagpeningar vegna veikinda barns - 11.8.2010

Athygli er vakin á auknum réttindum foreldra langtímaveikra barna hjá Sjúkrasjóði BHM.  Sjóðurinn greiðir nú dagpeninga í allt að 3 mánuði sé um alvarleg langtímaveikindi barns að ræða. Nú er stjórn sjóðsins heimilt að framlengja þann rétt um allt að 3 mánuði til viðbótar.  Sjóðsfélagar í Sjúkrasjóði BHM eru félagsmenn sem starfa á almennum vinnumarkaði.  Opinberir starfsmenn eru aðilar að öðrum sjóði, Styrktarsjóði BHM.  Nánari upplýsingar um dagpeningagreiðslur má finna á vefsvæði Sjúkrasjóðs.

 
Brekkuskogur

Afsláttarkort í sumar - 4.6.2010

Athygli er vakin á nokkrum afsláttarkortum sem Orlofssjóður BHM býður félagsmönnum upp á í sumar á góðum kjörum.  Um er að ræða útilegukort, veiðikort, hótelafsláttarmiða og gjafabréf í flug.  Útilegukortið gildir á fjölda tjaldsvæða og  veiðikortið veitir aðgang að rúmlega 30 veiðivötnum víðsvegar um landið.  Þá er boðið upp á afsláttarmiða vegna gistingar á Edduhótelum í sumar auk gjafakorta á flugmiðum hjá Iceland Express og Icelandair. Nánari upplýsingar um gjafakort í flug er að finna á bókunarvef Orlofssjóðsins.

 

Kynning á lífeyrismálum fyrir sjóðsfélaga LSR - 12.5.2010

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) lsrbýður sjóðsfélögum til kynningarfundar fimmtudaginn 27. maí n.k.  Fjallað verður um uppbyggingu réttindakerfis, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.

Hér má skoða glærukynningar frá fundinum:

B-deild LSR og LH 

A-deild LSR og geymdur réttur í B-deild og LH



 

Orlofsuppbót 2010 - 29.4.2010

Félagsmenn sem hafa  verið í fullu starfi allt orlofsárið (1. maí til 30. apríl) fá greidda sérstaka persónuuppbót, orlofsuppbót, að upphæð kr. 25.200 fyrir þá sem starfa hjá ríki eða sveitarfélögum.  Upphæðin er sú sama og gilti fyrir árið 2009 fyrir opinbera starfsmenn. Hér má sjá upphæð orlofsuppbótar eftir viðsemjendum.

Lesa meira
 

Aðalfundur Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga - 21.4.2010

Aðalfundur Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga verður haldinn miðvikudaginn 28. apríl nk. að Borgartúni 6, 3ju hæð og hefst kl. 16:00.  Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.  Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og gefa kost á sér til trúnaðarstarfa fyrir félagið. 

Lesa meira
 

Umsóknarfrestur vegna orlofshúsa til 1. apríl - 24.3.2010

Vakin er athygli félagsmanna áforsida því að frestur til að sækja um orlofshús og orlofsíbúðir fyrir komandi sumar rennur út að kvöldi 1. apríl n.k.

Nánar má skoða þá kosti sem  sjóðurinn býður upp á í orlofsblaði BHM sem nálgast má hér til hliðar.

Sjá einnig nánar tilkynningu frá Orlofssjóði BHM.

Lesa meira
 
nyttukraftinn_logo_cmyk_72p

Atvinnuleitendur - 15.3.2010

Athygli atvinnulausra félagsmanna er vakin á því að Nýttu kraftinn fer af stað með nýjan hóp fimmtudaginn 18. mars nk.  og eru enn nokkur pláss laus.  Nýttu kraftinn er 3ja mánaða ferli þar sem atvinnuleitendur ganga til hvers dags sem vinnudagur væri með það í huga að gera sjálfan sig samkeppnishæfari í atvinnuleitinni.  Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga greiðir að fullu námskeiðsgjald fyrir félagsmenn sem hafa verið í félaginu í ár eða lengur og Fræðagarður styrkir félagsmenn að hluta.  Nánari upplýsingar um Nýttu kraftinn

 

Trúnaðarmannanámskeið - 9.3.2010

BHM stendur fyrir tveimur námskeiðum fyrir trúnaðarmenn og aðra áhugasama félagsmenn í mars.  Trúnaðarmannanámskeið fnamskeidyrir nýja trúnaðarmenn verður haldið fimmtudaginn 25. mars.  Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem nýlega hafa tekið að sér trúnaðarmannastarf, sjá nánar dagskrá

Þá er vakin athygli á námskeiði um sjóði BHM og Starfsendur-hæfingasjóð, sem haldið verður þriðjudaginn 23. mars, sjá nánar dagskrá.
Tilkynna þarf þátttöku á netfangið jona@bhm.is. Fjöldi er takmarkaður og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst.

 

Aðalfundur Félags Íslenskra félagsvísindamanna - 4.2.2010

Aðalfundur Félags íslenskra félagsvísindamanna verður haldinn fimmtudaginn 4. mars nk. að Borgartúni 6, 3ju hæð kl. 12:00-13:00.  Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.  Áhugasamir félagsmenn eru hvattir til að bjóða sig fram í þær trúnaðarstöður sem kosið verður um á aðalfundinum.

Lesa meira
 

Páska- og sumarúthlutun Orlofssjóðs - 3.2.2010

Opnað hefur verið fyrir móttöku umsókna um páska- og sumarúthlutun Orlofssjóðs BHM.  Hægt er að sækja um orlofshús um páskana til 1. mars og um sumar til 1. apríl 2010, á bókunarvefsvæði sjóðsins. Þá er vakin athygli á breyttum úthlutunarreglum sjóðsins.

Lesa meira
 

Breytingar á úthlutunarreglum Styrktarsjóðs og Sjúkrasjóðs - 18.1.2010

Vakin er athygli á breyttum úthlutunarreglum Styrktar- og Sjúkrasjóðs BHM. 

Félagsmenn geta sótt um styrki í þann sjóð sem þeir eiga aðild að, m.a. um sjúkradagpeninga eftir að veikindarétti hjá vinnuveitanda lýkur, styrki vegna ýmiskonar meðferðar á líkama og sál, líkamsræktarstyrk, styrk vegna gleraugnakaupa og laseraðgerða, útfarastyrk o.fl.

Lesa meira
 

Desemberuppbót 2009 - 30.11.2009

Persónuuppbót í desember skal greiða út 1. desember, í samræmi við starfshlutfall og starfstíma á árinu. Upphæð persónuuppbótar er misjöfn eftir kjarasamningum, hjá ríki og sveitarfélögum er upphæðin sú sama og á síðasta ári, þar sem  samningar eru enn lausir á milli aðila. 

Lesa meira
 

Óásættanlegt hvernig staðið er að kjaraskerðandi aðgerðum - 12.10.2009

 

Almennur félagsfundur félaganna fimm sem standa að Huggarði, sem haldinn var í hádeginu mánudaginn 12. október 2009, samþykkti ályktun þar sem segir að það sé óásættanlegt með öllu hvernig staðið er að kjaraskerðandi aðgerðum gagnvart starfsmönnum ríkisins. Aðgerðirnar eru óhóflega íþyngjandi fyrir marga ríkisstarfsmenn og við þær er hvorki gætt meðalhófs né jafnræðis.  Fundurinn átelur harðlega það ábyrgðarleysi, ráðaleysi og siðleysi stjórnvalda sem birtist í aðgerðum þessum og við framkvæmd þeirra.

Lesa meira
 

Stjórn Huggarðs mótmælir kjaraskerðingum - 12.10.2009

Stjórn Huggarðs hefur sent Steingrími J. Sigurðssyni, fjármálaráðherra, mótmæli vegna þeirra kjaraskerðinga sem nú dynja á starfsfólki hins opinbera. í bréfi stjórnarinnar er þess krafist að ráðherra sjái til þess að stofnanir ríkisins haldi gerða kjarasamninga og að við framkvæmd aðgerðanna sé gætt jafnræðis milli stofnana og innan þeirra.

Lesa meira
 

Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga styður atvinnulausa félagsmenn - 30.9.2009

Í ljósi breyttra aðstæðna á vinnumarkaði hefur stjórn SBU ákveðið að styðja atvinnulausa félagsmenn með því að bjóða þeim að taka þátt í Nýttu kraftinn þeim að kostnaðarlausu.  Nýttu kraftinn er 3ja mánaða ferli þar sem atvinnuleitendur ganga til hvers dags sem vinnudagur væri með það í huga að nyttukraftinn.isgera sjálfan sig samkeppnishæfari í atvinnuleitinni. 

Lesa meira
 

Fyrirlestur fyrir félagsmenn í atvinnuleit - 17.9.2009

Fimmtudagana 24. september og 1., 15. og 29. október n.k. býður BHM félagsmönnum í atvinnuleit upp á fyrirlestur sem ber yfirskriftina Komdu þér á framfæri.  Fyrirlesari er Andrés Jónsson almannatengill og framkvæmdastjóri Góðra samskipta. Að mati Andrésar hefur aldrei verið meiri þörf fyrir námskeið sem kennir vel hæfu fólki að finna nýtt starf. Fyrirlestur Andrésar fer fram í húsnæði BHM að Borgartúni 6 3ju hæð frá kl. 11:30-14:00. Skráning á fyrirlestur

 
Brekkuskogur

Vetrarúthlutun orlofssjóðs BHM - 16.9.2009

Vakin er athygli á því að Orlofssjóður BHM hefur opnað fyrir vetrarúthlutun til 1. janúar 2010.  Í vetur verður ný íbúð í boði á Akureyri, Hábær í Skagafirði út október og einungis ein íbúð í boði í Kaupmannahöfn.  Nánari upplýsingar um orlofshús má finna á vefsvæði Orlofssjóðs BHM

 

Stöðugleikasáttmáli undirritaður - 25.6.2009

Fyrr í dag var skrifað undir stöðugleikasáttmála sem hefur það markmið að stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Fram kemur í sáttmálanum að samningsaðilar á opinberum vinnumarkaði muni eins fljótt og auðið er ganga frá kjarasamningum en samningar hafa verið lausir frá 31. mars sl.  Þá hafa samningsaðilar á almennum vinnumarkaði náð samkomulagi um að framlengja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði til nóvemberloka 2010. Hér má skoða sáttmálann í heild sinni.

 

Útilegukort og veiðikort á góðum kjörum - 11.6.2009

Vakin er athygli á sölu orlofssjóðs BHM á útilegukortum og veiðikortum til félagsmanna á góðum kjörum. Um er að ræða kort sem annars vegar veita ótakmarkaðan aðgang að fjölda tjaldsvæða víðsvegar um landið og hins vegar aðgang að rúmlega 30 veiðivötnum. Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði orlofssjóðsins.

 

Orlofsuppbót 2009 - 5.5.2009

Starfsmaður sem hefur verið í fullu starfi allt orlofsárið (1. maí til 30. apríl) fær greidda sérstaka persónuuppbót, orlofsuppbót, að upphæð kr. 25.200 fyrir þá sem starfa hjá ríki eða sveitarfélögum. 

Lesa meira
 

Málþing um samfélaglegar afleiðingar fjármálakreppu - 5.5.2009

Vakin er athygli á málþingi Félagsfræðingafélags Íslands um afleiðingar fjármálakreppunnar miðvikudaginn 6. maí á Grand Hótel.  Sjá nánar dagskrá málþingsins .

 

Kjarasamningur við RARIK ohf. undirritaður - 25.3.2009

Í gær var undirritaðurRARIK_logo_1b kjarasamningur 6 stéttarfélaga háskólamanna og RARIK ohf.  Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga og Fræðagarður (áður Útgarður og Félag íslenskra fræða) eru aðilar að samningum.  Um er að ræða fyrsta kjarasamning á milli aðila eftir að fyrirtækið var gert að opinberu hlutafélagi.

Lesa meira
 

Aðalfundur SL miðvikudaginn 25. mars - 19.3.2009

Aðalfundur Stéttarfélags lögfræðinga verður haldinn miðvikudaginn 25. mars næstkomandi, í fundarsal BHM á 3. hæð í Borgartúni 6. Fundurinn hefst klukkan 17. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf og fyrir liggur að minnsta kosti ein tillaga um breytingar á lögum félagsins. Lesa meira
 

Aðalfundur SBU 19. mars - 9.3.2009

Aðalfundur Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga verður haldinn fimmtudaginn 19. mars næstkomandi, í fundarsal á 3. hæð í Borgartúni 6, og hefst hann klukkan 11:30. Dagskrá er hefðbundin aðalfundarstörf, eins og kveðið er á um í lögum félagsins. Undir liðnum önnur mál verður svo atkvæðagreiðsla milli tveggja kosta er varða hugmyndir um sameiningu félagsins við Fræðagarð, sem verið hafa til umfjöllunar innan félagsins síðastliðið starfsár. Almennur félagsfundur, sem haldinn var 28. janúar síðastliðinn, vísaði því til aðalfundar að hann tæki afstöðu til hvort skjóta eigi hugmyndinni um sameiningu við Fræðagarð á frest um óákveðinn tíma, eða hvort setja eigi í gang rafræna atkvæðagreiðslu um hvort fara eigi í aðildarviðræður við Fræðagarð án skuldbindinga. Lesa meira
 

Nýtt fræðsluefni fyrir félagsmenn - 5.3.2009

Hér má finna nýja samantekt á fræðsluefni  ætlaða bæði þeim sem gegna trupplýsingarúnaðarstörfum fyrir stéttarfélög og almennum félagsmönnum.  Fjallað er m.a. um kjarasamninga, vinnurétt, orlof, veikindi, lífeyrisréttindi og uppsagnir.

Þá er jafnframt vakin athygli á samantekt upplýsingum og leiðbeiningum til félagsmanna vegna núverandi ástands á vinnumarkaði.

 

Aðalfundur Félags íslenskra félagsvísindamanna - 5.3.2009

Aðalfundur Félags íslenskra félagsvísindamanna verður haldinn mánudaginn 9. mars 2009 kl. 12.00-13:00 í húsnæði BHM að Borgartúni 6, 4. hæð.  Stjórn FÍF hvetur áhugasama félagsmenn til að bjóða sig fram til trúnaðarstarfa þeirra sem kosið er til á aðalfundi félagsins. Hér má finna skýrslu stjórnar vegna ársins 2008 sem kynnt verður á fundinum.

Lesa meira
 
Orlof09forsida

Sumarorlof 2009 - 20.2.2009

Orlofsblað Bandalags háskólamanna er komið út og hefur verið sent til félagsmanna. Í blaðinu er gert grein fyrir þeim orlofskostum sem félagsmönnum bjóðast í sumar innan lands og utan. Má þar nefna niðurgreidda hóteldvöl eða leigu á íbúðum og sumarhúsum. Orlofsblaðið er hægt að skoða á rafrænu formi með því að smella hér.

 

Nánari upplýsingar um Orlofssjóð BHM er að finna á vefssvæði sjóðins og á bókunarsvæði sjóðsins.

 

Aðalfundur Fræðagarðs - 18.2.2009

Aðalfundur Fræðagarðs (áður Útgarður og Félags íslenskra fræða) verður haldinn mánudaginn 23. febrúar n.k. í húsnæði BHM að Borgartúni 6, 3ju hæð og hefst hann kl. 16:15.  Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Lesa meira
 

Fyrirlestraröð BHM um Evrópusambandið hefst 9. febrúar - 3.2.2009

Bandalag háskólamanna efnir til fyrirlestraraðar um Evrópumálin á tímabilinu 9. febrúar til 16. mars.  Fyrirlestrunum er ætlað að vera upplýsandi og er vonast til að þeir geti hjálpað fólki til við að móta afstöðu sína til þessa málefnis, sem er svo fyrirferðarmikið í þjóðfélagsumræðu í dag.

Fjallað verður um efnið frá ýmsum sjónarhornum, meðal annars lögfræðilegu, stjórnmálalegu, hagfræðilegu og félagslegu. Fyrirlesarar eru lögmennirnir Erna Guðmundsdóttir og Jón Sigurðsson, stjórnmálafræðingarnir Gylfi Kristinsson og Úlfar Hauksson, Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur og Ólafur Grétar Kristjánsson, sérfræðingur í Menntamálaráðuneyti.

Fyrirlestrarnir eru opnir öllum félagsmönnum aðildarfélaga BHM og verða haldnir á mánudögum í hádegi á tímabilinu 9. febrúar til 16. mars.

Fyrirlestrarnir eru haldnir í salnum á 3. Hæð í Borgartúni 6.

Í fyrsta fyrirlestrinum fjallar Jón Sigurðsson, hrl., LL.M. í Evrópurétti, um Evrópusambandið og Evrópurétt.

Athugið að skrá ykkur á fyrirlestrana.

Lesa meira
 

Aðgerðum Reykjavíkurborgar harðlega mótmælt - 30.1.2009

Sameiginlegur félagsfundur Fræðagarðs, Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga og Stéttarfélags lögfræðinga, sem haldinn var fimmtudaginn 29. janúar 2009, samþykkti harðorð mótmæli við launalækkunaraðgerðum Reykjavíkurborgar. Fundurinn taldi aðgerðirnar og aðferðafræðina við þær brjóta grundvallaratriði í samskiptum aðila á vinnumarkaði. Lesa meira
 

Félagsfundur hjá Stéttarfélagi bókasafns- og upplýsingafræðinga - 27.1.2009

Stjórn Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga boðar til almenns félagsfundar miðvikudaginn 28. janúar kl. 12:00 í Borgartúni 6, 3ju hæð.  Þar verða kostir og gallar sameiningar við Fræðagarð kynntir auk skýrslu vinnuhóps um framtíð Stéttarfélags bóksafns- og upplýsingafræðinga.

Lesa meira
 

Erindi um stöðu og horfur á vinnumarkaði - 21.1.2009

Vakin er athygli á fyrirlestraröð Rannsóknarstofu í vinnuvernd .  Vormisseri hefst með erindi Karls Sigurðssonar forstöðumanni vinnumálasviðs hjá Vinnumálastofnun, föstudaginn 23. janúar n.k. kl. 12:00-13:00 í Háskóla Íslands, í stofu 201 í Odda. Umfjöllunarefni erindisins er staða og horfur á vinnuamarkaði næstu mánuði. Sjá nánari lýsingu á umfjöllunarefni.

 

Vísindasjóður Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga - 20.1.2009

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrk úr vísindasjóði Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga.  Hér má finna rafrænt umsóknarform. Umsóknarfestur er til og með 4. febrúar 2009. 

 

Vísindasjóður Félags íslenskra félagsvísindamanna - 15.1.2009

Opnað hefur verið fyrir móttöku umsókna um styrk úr vísindasjóði Félags íslenskra félagsvísindamanna.  Hér má nálagast rafrænt umsóknarform. Umsóknarfrestur er til 29. janúar en að þeim tíma liðnum verður ekki hægt að sækja um styrk vegna ársins 2008.  Opnað verður fyrir umsóknir um styrk úr vísindasjóð Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga síðar í mánuðinum. 

 

Starfshópur skipaður um leiðir til að sporna gegn atvinnuleysi - 12.1.2009

Félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað starfshóp um vinnumarkaðsaðgerðir með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaganna, fjármálaráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins til að móta tillögur um aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi. Hópnum er ætlað að skila félags- og tryggingamálaráðherra fyrstu tillögum sínum um vinnumarkaðsaðgerðir fyrir 1. febrúar. Fulltrúi BHM er Cecilie Björgvinsdóttir. 

Lesa meira
 

Ályktun vegna ástands á vinnumarkaði - 12.1.2009

Í ljósi þeirra stöðu sem uppi er á vinnumarkaði eru félagsmenn aðildarfélaga Huggarðs hvattir til að hafa samband áður en þeir samþykkja breytingar á ráðningakjörum eða starfshlutfalli.  Hér má finna ályktun BHM vegna ástands á vinnumarkaði.

Lesa meira
 

Umsóknir í vísindasjóð Fræðagarðs - 6.1.2009

Frá og með deginum í dag er hægt að sækja um styrk úr vísindasjóð Fræðagarðs (áður Útgarður og Félag íslenskra fræða, kjaradeild)  fyrir árið 2008.  Hér má finna rafrænt umsóknarform.  Hægt er að sækja um styrk til og með 20. janúar 2009. Opnað verður fyrir móttöku umsókna í vísindasjóð Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga og Félags íslenskra félagsvísindamanna síðar í mánuðinum.

 

Breytingar á persónuafslætti og staðgreiðslu - 5.1.2009

Athygli er vakin á breytingum á persónuafslætti og skatthlutfalli í staðgreiðslu sem tóku gildi 1. janúar 2009.  Persónuafsláttur einstaklinga hækkar úr 34.034 í 42.205 krónur á mánuði frá og með 1. janúar 2009.  Þá er heimilt að nýta allan ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2009. Staðgreiðsluprósentan hækkar úr 35,72% í 37,2% frá sama tíma (skatthlutfall staðgreiðslu). Nánari upplýsingar um breytingarnar má finna á vefsvæði Ríkisskattstjóra.

 


 

Kjarasamningar við sveitarfélög samþykktir - 12.12.2008

Nú liggja fyrir niðurstöður í rafrænni atkvæðagreiðslu um kjarasamninga við tvo viðsemjenda, annars vegar Reykjavíkurborg og hins vegar Launanefnd sveitarfélaga f.h. þeirra sveitarfélaga sem veitt hafa henni umboð til samningagerðar.  Kjarasamningarnir voru samþykktir af öllum félögum innan Huggarðs.  Hér má finna nánari upplýsingar um niðurstöðu atkvæðagreiðslu eftir viðsemjanda og stéttarfélagi.

Lesa meira
 


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica