Launagreiðendur
Launagreiðendur
Upplýsingar um félagsgjöld og greiðslur í sjóði BHM
ATH: Nýtt bankanúmer 0336-26-50000
Félagsgjöld sem dregin eru mánaðarlega af launum félagsmanna og vinnuveitandi gerir skil á eru mismunandi eftir félögum þannig að hjá:
- Fræðagarði (áður Útgarður og Félag íslenskra fræða - kjaradeild) kt: 491079-0459 ( 679); Stéttarfélagi bókasafns og upplýsingafræðinga, kt:511290-2369 (670); Félagi íslenskra félagsvísindamanna, kt: 690481-0149 (693) eru félagsgjöldin 1% af dagvinnulaunum
- Kjarafélagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga, kt: 450588-2029 (671) eru félagsgjöldin 0,6% af heildarlaunum (var fyrir 1. júní 2009 0,7% af dagvinnulaunum).
- Stéttarfélagi lögfræðinga,kt: 521081-0239 (672) eru félagsgjöldin 0,65% af heildarlaunum.
Mótframlagið er það sama hjá öllum þannig að vinnuveitandi greiðir:
- Í orlofssjóð BHM 0,25% af heildarlaunum
- Í starfsmenntunarsjóð BHM 0,22% af dagvinnulaunum
- Í fjölskyldu og styrktarsjóð 0,55% af heildarlaunum
- Í vísindasjóð hvers félags 1,5% af dagvinnulaunum *
- Í sjúkrasjóð BHM 1% af heildarlaunum
Sjúkrasjóður er einungis fyrir starfsmenn á almennum vinnumarkaði. Aðrir greiða í Fjölskyldu og styrktarsjóð. Aldrei greitt í báða í einu.
Starfsmenn á almennum vinnumarkaði þurfa að sækja sérstaklega um aðild að starfsmenntunarsjóði BHM. Umsóknin berist stjórn sjóðsins.
* Launagreiðendur á almennum vinnumarkaði sem taka mið af kjarasamningi BHM og ríkisins greiða ekki í vísindasjóð frá 1. júní 2008. Ekki er greitt í vísindasjóði frá sama tíma fyrir ríkisstarfsmenn en áfram er greitt í vísindasjóði fyrir félagsmenn sem taka laun eftir kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar.
Allar greiðslur vegna félagsgjalda og iðgjalda í vísindasjóð, orlofssjóð, starfsmenntunarsjóð, sjúkrasjóð og fjölskyldu- og styrktarsjóð eiga að greiðast inn á reikning hjá Arion banka. Bankaupplýsingar: 0336-26-50000 kt. 630387-2569. Greiða má í einni upphæð en skilagreinar með fullnaðarupplýsingum um viðkomandi launþega þurfa jafnframt að berast til Arion banka.
Senda má rafrænt með XML skjali á slóðina https://secure.bhm.is/bib/skilagreinar.asp annarsvegar (líkt og með skeytaskil til RSK) eða SALfærslu með tölvupósti á netfang skbib@bhm.is hinsvegar.
Heimilisfang fyrir skilagreinar sem berast í pósti
Arion banki
Borgartúni 19 v/BIB
105 Reykjavík
Netfang fyrir skilagreinar: skbib@bhm.is
Fax: 444-6699
