Sjóðir
Sjóðir BHM
Sjóðir BHM og vísindasjóður
Nokkrir sjóðir starfa á vegum Bandalags háskólamanna (BHM) eða í tengslum við BHM og síðan er vísindasjóður innan hvers félags fyrir sig.
Sá elsti og stærsti er Orlofssjóður BHM sem hefur það markmið að auðvelda sjóðfélögum að njóta orlofs. Sjóðurinn á yfir 40 húseignir víða um land, þar af 20 í heilsársnotkun. Bókunarvefur orlofssjóðs BHM
Sjúkrasjóður BHM er einungis fyrir þá félagsmenn sem starfa á almennum vinnumarkaði.
Styrktarsjóður BHM er fyrir starfsmenn ríkisins, sveitarfélaga og sjálfseignarstofnana.
Starfsmenntunarsjóður BHM var stofnaður með samkomulagi BHM og ríkisins 5.september 1980.
Rafræn umsókn um sjúkrasjóð, styrktarsjóð eða starfsmenntasjóð
Réttindi sjóðsfélaga við breytta atvinnuþátttöku
Vísindasjóðir
Félögin fimm sem standa að HugGarði hafa öll á sínum vegum vísindasjóð.
