Mæðraskoðun á launum

Barnshafandi konur eiga rétt til nauðsynlegra fjarvista frá vinnu vegna mæðraskoðunar, án frádráttar á föstum launum, þurfi slík skoðun að fara fram í vinnutíma.

Fjarvistir þungaðra kvenna vegna mæðraskoðunar, án frádráttar á föstum launum byggir á samningi milli fjármálaráðherra og Bandalags háskólamanna frá 1999. Sams konar samningur er á milli Launanefndar sveitarfélaga og Bandalags háskólamanna.

Samningarnir hrinda í framkvæmd 9. gr. tilskipunar um lögleiðingu ráðstafana til að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir starfsmenn sem eru þungaðir eða hafa nýlega alið eða hafa börn á brjósti (92/85/EBE).

Markmið mæðraverndar eru að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita ráðgjöf og bregðast við áhættuþáttum. Mæðravernd er tilvonandi móður að kostnaðarlausu sé hún sjúkratryggð á Íslandi. Sjá nánar Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími þjónustuvers:
mán. til fim. 9:00 - 15:00,
fös. 9:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00,
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt