Kjarasamningar aðildarfélaga BHM
Kjarasamningur 23 aðildarfélaga BHM við ríkið, undirritaður 28. febrúar 2005.
Launatöflur ríkisstarfsmanna 2007
Kjarasamningur Félags Íslenskra náttúrufræðinga, undirritaður 18. mars 2005.
Kjarasamningar aðildarfélaga BHM 2000 - 2004
Ferðakostnaður
Ferðakostnaðarnefnd reiknar út og endurskoðar þessa upphæð reglulega. Hér má finna auglýsingar ferðakostnaðarnefndar dagpeninga ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands og erlendis, ásamt auglýsingu um akstursgjald ríkisstarfsmanna.
Desemberuppbót
Starfsmaður ríkisstofnunar sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili.
Á árinu 2005 kr. 39.700
Á árinu 2006 kr. 40.700
Á árinu 2007 kr. 41.800
Starfsmaður sveitarfélags í fullu starfi skal fá greidda persónuuppbót í desember ár hvert sem nemi 25% af 18. lfl. 7. þrepi, skv. launatöflu félags, með þeirri undantekningu að í tilfelli þroskaþjálfa er miðað við 21. lfl.. Með fullu starfi er átt við 100% starf tímabilið 1. janúar til 30. nóvember sama ár. Hafi starfsmaður gegnt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall og/eða starfstíma, þó þannig að hann hafi starfað samfellt a.m.k. frá 1. september það ár.
Starfsmaður sem lætur af störfum á árinu, en hafði þá starfað samfellt í a.m.k. 6 mánuði skal einnig fá greidda persónuuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall á árinu.
Orlofsuppbót
Félagsmenn allra aðildarfélaga BHM eiga samkvæmt kjarasamningum rétt á orlofsuppbót sem greiða skal út 1. júní á árabilinu 2006 - 2008.
Á árinu 2006 kr. 22.400
Á árinu 2007 kr. 23.000
Á árinu 2008 kr. 23.600
