Álit umboðsmanns alþingis

Álit umboðsmanns Alþingis um eineltismál

Athafnaskylda hvílir á ráðherra til að gera nauðsynlegar ráðstafanir á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna þannig að einelti á vinnustað sé aflétt- Mál nr. 5718/2009.

Umboðsmaður ákvað að taka til athugunar að eigin frumkvæði,  hvernig almennt væri háttað aðkomu ráðuneyta að málum  þar sem fyrir lægi: 

1)      Að tiltekinn kerfisvandi væri til staðar í starfsemi undirstofnunar,

2)      verulegir samskiptaörðugleikar væru á milli starfsmanna eða

3)       jafnvel að fram hefðu komið ásakanir hjá starfsmanni um einelti af hálfu annarra starfsmanna og/eða yfirmanns stofnunar.

Lesa meira
 

Tímabundin ráðning ekki í samræmi við meginreglu um ótímabundna ráðningu

Umboðsmaður Alþingis álítur að tímabundin enduráðning A sem hafði starfað í tvö ár samfellt, hafi ekki verið í samræmi við meginregluna um ótímabundna ráðningu. Lesa meira
 

Ábending umboðsmanns Alþingis um bótagreiðslur fylgi stjórnvöld ekki stjórnsýslulögum við úrlausn á málum almennings.

Í máli nr. 5129/2007 frá 17. nóvember 2008 beinir umboðsmaður því til Alþingis og forsætisráðherra að Alþingi setji í lög ákvæði um viðurlög gagnvart stjórnvöldum, t.d. um bótagreiðslur, þegar þau fylgja ekki réttum málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttarins við úrlausn á málum borgaranna.  Erna Guðmundsdóttir hdl., lögmaður BHM og KÍ hefur farið yfir dóminn og er hann aðgengilegur hér .

Lesa meira
 

Álit umboðsmanns Alþingis

Nýlega kom umboðsmaður með álit í máli kennara sem haðfi verið ráðinn tímabundinni ráðningu lengur en tvö ár. Erna Guðmundsdóttir hdl., lögmaður BHM og KÍ hefur farið yfir dóminn. Samantekt hennar má nálgast hér.
 



home2

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica