Dómar

Nýr félagsdómur - 6.5.2009

Ákvörðun vinnuveitanda að hætta keyrslu starfsmanns til og frá vinnustað á vegum stofnunarinnar, auk greiðslna fyrir aksturstíma, er dæmd andstæð grein 5.4.1 í kjarasamningi. Lesa meira
 

Ákvörðun vinnuveitanda að hætta keyrslu starfsmanns til og frá vinnustað á vegum stofnunarinnar, auk greiðslna fyrir aksturstíma, er dæmd andstæð grein 5.4.1 í kjarasamningi. - 4.5.2009

Niðurstaðan í félagsdómsmáli nr. 5/2009: Dómur frá 24. apríl 2009 er í stuttu máli sú, að viðurkennt var, að ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, sem tilkynnt var starfsmanni, sjúkraliða á Víðihlíð í Grindavík, um að hætta keyrslu hennar til og frá Víðihlíð á vegum stofnunarinnar auk greiðslna fyrir aksturstíma, sé andstæð grein 5.4.1 í kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs sem hljóðar svo:

Lesa meira
 

LSR skylt að greiða dráttarvexti af vangoldnum lífeyrisgreiðslum - 6.4.2009

Í dómi héraðsdóms frá 27. mars sl. var viðurkennd skylda stefnda, Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, til greiðslu dráttarvaxta af vangoldnum lífeyrisgreiðslum til stefnanda sem var kennari við Sjómannaskólann í Reykjavík. Ágreiningur var uppi um hvort heimilt væri að reikna dráttarvexti á vangoldnar lífeyrisgreiðslur frá lífeyrissjóði til lífeyrisþega þegar lífeyrisgreiðslur voru leiðréttar aftur í tíma. Fallist á með stefnanda að heimilt væri að dráttarvaxtareikna greiðslurnar. Lesa meira
 

Nemandi dæmdur til að greiða kennara sínum  skaðabætur - 6.4.2009

Kennari hlaut varanlegt líkamstjón í starfi sínu er nemandi hennar, sem haldin var Asperger-heilkenni, skellti aftur rennihurð þannig að hún lenti á höfði kennarans. Kennarinn krafðist bóta óskipt úr hend nemandans og sveitarfélagsins, sem hafði með höndum rekstur skólans. Í héraði var ekki talið sýnt fram á að rennihurðin hafi verið haldin vanköntum eða ekki verið í samræmi við gildandi reglur um byggingu og aðbúnað í skólahúsnæði. Lesa meira
 


Flýtival


banner7

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica