Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þann 11. febrúar sl. var frumvarpi til breytingar á ákvæðum laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof dreift á Alþingi. Nokkrar mikilvægar breytingar eru lagðar til, m.a. á viðmiðunartímabili við útreikning á greiðslum til foreldra, yfirfærslu réttinda vegna dauðsfalls foreldris á meðgöngu barns eða sjúkdóms o.fl.
Fram er komið nýtt frumvarp félagsmálaráðherra um jafna stöðu og rétt kvenna og karla. Um er að ræða ný heildarlög á þessu sviði og byggja þau í meginatriðum á störfum nefndar undir forystu Guðrúnar Erlendsdóttur, fyrrverandi hæstaréttardómara. Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur BHM og KÍ hefur farið yfir frumvarpið og helstu nýmæli þess.