Útilegukort

Útilegukortið

Orlofssjóður BHM hefur hafið sölu á Útilegukortinu sem veitir rétt á dvöl á tjaldsvæðum víðs vegar um landið.

Útilegukortið er niðurgreitt af Orlofssjóði BHM og kostar kr. 8,500,- til félagsmanna sumarið 2010. Fullt verð er kr. 13.900,-. Kortið þarf svo að sækja á skrifstofu BHM í Borgartún 6 á skrifstofutíma.veiðikort_2009

Útilegukortið gildir á fjölda tjaldsvæða víðs vegar um landið og veitir eiganda þess, maka og fjórum börnum undir 16 ára aldri, fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins.

Útilegukortið er í gildi eins lengi og tjaldsvæðin eru opin. Nánari upplýsingar: http://www.utilegukortid.is. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti.

 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica