Spurt og svarað

Get ég leigt bústað í fæðingarorlofi?

Svar: Þú átt rétt á að leigja orlofshús í fæðingarorlofi ef þú greiðir stéttarfélagsgjald  af greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Orlofssjóður líka opinn atvinnulausum

Svar: Já þeir sem eru atvinnulausir eða í launalausu leyfi frá vinnu geta valið að greiða árgjald orlofssjóðsins og halda þá rétti til að leigja orlofshús eða íbúðir. Árgjaldið er nú kr. 2.500.

 

Hvað verður um hluti sem gleymast í orlofshúsum

Svar: Hafa skal samband við umsjónarmann orlofshúsanna. Upplýsingar um síma þeirra er að finna á kvittun leigu. Því sem finnst í Brekkuskógi er komið á skrifstofu Orlofssjóðsins að Borgartúni 6 við fyrsta tækifæri.

 

Hætt við leigu orlofshúsa

Hægt er að fá leiguna endurgreidda en þó aldrei meira en sem nemur 80% af leiguupphæð ef hætt er við með amk. 7 daga fyrirvara að vetri en 14 daga fyrirvar að sumri. Erlendis þarf fyrirvarinn að vera 30 dagar. Ef félagsmaður hættir við leigu innan marka fæst endurgreiðsla ef tekst að leigja öðrum.

 

Hvernig kemst ég í sumarbústaði á vegum OBHM?

Svar: Ef þú ætlar í Brekkuskóg er leiðarlýsingin eftirfarandi: Frá Reykjavík eru um 107 kílómetrar í Brekkuskóg, ef farið er um Laugarvatn. Ekið er frá Reykjavík, um Hveragerði, beygt norður með Ingólfsfjalli og farið um Grímsnesið. Hjá Svínavatni er beygt áleiðis að Laugarvatni. Brekkuskógur er svo 14 km austan við þorpið á Laugarvatni. Með því að smella hér er hægt að láta kortavef ja.is finna stystu leið að heiman hvert sem er á landinu.

 

Hvenær á að vera búið að skila inn umsóknum fyrir páska og útlönd og hvenær er hægt að nálgast það á netinu?

 Svar. Það á að vera búið að skila inn þessum umsóknum að fyrir  kl. 24 að kvöldi 1. mars. Umsóknarformið kemur á netinð í lok janúar.

 

Hvenær á að vera búið að skila inn umsóknum fyrir sumarhús innanlands og hvenær er hægt að nálgast það á netinu?

Svar. Það á að vera búið að skila inn þessum umsóknum að fyrir  kl. 24 að kvöldi 1. apríl. Úthlutun ætti að vera lokið 3-4  apríl síðasta lagi. Umsóknarformið  fyrir páska, útlönd og sumarhús innanlands í sumar kemur á netið í lok janúar.

 

Hvernig sækir maður um rafrænt á netinu?

Svar: Þú ferð á bókunarvefinn, hann er að finna á http://www.bhm.is/  velur þar bókunarvef OBHM, slærð inn kennitöluna í einni bendu og setur að netfang sem þú notar mest. Undir eðililegum kringustæðum ætti þá bókunarvefurinn að opnast þér. Síðan velur þú ´"Umsóknir og úthlutanir" og það sem þú ætlar að sækja um. Páska, útlönd eða sumar. Eftir það er mikilvægt að fara eftir þeim leiðbeiningum sem búið er að setja upp.

 

Ég þarf að hætta við eða breyta umsókninni eftir að ég hef sent hana, hvað get ég gert? 

 Svar: Þú hefur samband við skrifstofu OBHM á skrifstofutíma eða sendir tölvupóst á obhm@bhm.is og gefur upp kennitölu og það sem á að breyta.

 

Ég er að fara í sumarhús og finn ekki kvittunina mína.

 

Svar: Þú ferð á bókunarvefinn þar sem þú bókaðir sumarhúsið velur þar kvittanir og smellir á númer pöntunarinnar og prentar út nýja kvittun.

 


orlofssjodur


Þetta vefsvæði byggir á Eplica