Verklagsreglur OBHM
Hér er hægt að nálgast reglur orlofssjóðsins um úthlutanir og fleira með því að sækja verklagsreglur sjóðsins.
Hér er hægt að nálgast skipulagsskrá OBHM.
Hér er hægt að sækja stefnumótun stjórnar OBHM fyrir árið 2010 samþykkta á fundi 8. desember 2009.
Á sumrin eru húsin/íbúðirnar leigð félagsmönnum til vikudvalar í senn, en á öðrum tímum er lágmarksbókun tvær nætur og hámarksbókun tvær vikur.
Hvernig fer úthlutun orlofshúsa fram? Punktakerfi og úthlutanir
Tölvukerfið úthlutar þannig að öllum umsóknum er raðað eftir punktaröð, þ.e. þeir umsækjendur sem hafa flesta punkta eru efst í röðinni og svo koll af kolli. Lífaldur ræður ef punktar tveggja eru jafnir þ.e. sá sem er eldri fær fyrst úthlutað. Kerfið les sig síðan í gegn um allar umsóknirnar og skoðar hvert val fyrir sig. Þeir sem fengu úthlutun hafa tvær vikur til að greiða hana. Þeir sem ekki fengu úthlutað í fyrstu umferð fara ekki á biðlista heldur eru þeir í forgangi að bóka ef eitthvað stendur eftir, eftir að þeir þeir sem fengu úthlutun hafa fengið tímann til að greiða. Þeir sem fengu útlutun en greiddu ekki fyrir útlutun fá líka forgang að bóka það sem eftir stendur. Þessi forgangsbókun stendur í eina viku. Eftir það geta allir sjóðfélagar bókað ef eitthvað er laust.
Forgangur á bókunarvef er fyrir þá sem sóttu um vegna:
Páska og útlanda 17. mars frá 12 á hádegi í eina viku.
Sumar innanlands 17. apríl frá 12 á hádegi í eina viku.
Svona safnast punktar Punktar safnast þannig að fyrir hvern greiddan mánuð fást 4 punktar samtals 48 fyrir árið.
Punktafrádráttartímbil:
Erlendis. Frá fyrsta föstudegi í maí í 20 vikur, 150 puktar, eftir það 15 punktar
Páskar. Vikan sem hefst frá miðvikudeginum fyrir páska til miðvikudagsins eftir páska 150 punktar.
Sumar innanlands. Fyrir viku sem byrjar á tímabilinu frá öðrum fimmtudegi eða föstudegi í júní í
10 vikur, 150 punktar.
Önnur tímabil innanlands. Engir punktar teknir við leigu.
Fyrstur kemur fyrstur fær ! Ef engin umsókn er um tiltekna viku í samkeppnisúthlutun verður sú vika sett á bókunarvefinn til frjálsrar bókunar strax eftir að útlutun lýkur. Sama punktafrádrag gildir þó bókað sé með skömmum fyrirvara.
