Akureyri
Drekagil 21
Um er að ræða íbúð í Drekagili 21 íbúðirn eru um 70 m2, með tveimur herbergjum og eldhúskrók
Allir algengustu húsmunir og eldhúsáhöld fylgja. Svefnstæði eru fyrir 5-6: tvíbreitt rúm, tvíbreiður sófi, rúm í herbergi og tvær lausar dýnur. Sex sængur og koddar, svo og sjónvarp eru í íbúðinni. Á hæðinni er þvottahús til afnota. Hægt er að leigja sængurföt, aukadýnur og sængur hjá umsjónarmanni.
Verð fyrir vikudvöl: 23.000 kr. Lágmarksbókun er tvær nætur, sem kostar kr. 11.500 og síðan kostar hver viðbótarnótt kr. 2.300.
Leigutími: Frá 18. september til 31. maí 2010.
Helstu upplýsingar um aðstöðu í íbúðinni:
| Drekagil 21 | |
|---|---|
| Stærð í fm | 70 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Þvottaaðstaða | já |
| Svefnpláss | 5-6 |
| Sængur | 6 |
| Lín fylgir | nei |
| Internet | já |
