Leiðin í Brekkuskóg frá Reykjavík
Frá Reykjavík eru um 107 kílómetrar í Brekkuskóg, ef farið er um Laugarvatn. Ekið er frá Reykjavík, um Hveragerði, beygt norður með Ingólfsfjalli og farið um Grímsnesið. Hjá Svínavatni er beygt áleiðis að Laugarvatni. Brekkuskógur er svo 14 km austan við þorpið á Laugarvatni.
Einnig er hægt að fara um Þingvöll og yfir Lyngdalsheiði, sem er um tuttugu kílómetrum styttri leið, en vegurinn um Lyngdalsheiði er malarvegur og misvel fær nema að sumarlagi.
Frá Akureyri liggur stysta leiðin í Brekkuskóg um Öxnadalsheiði, Mælifellsdal eða Vatnsskarð og svo Kjalveginn, en það er liðlega 300 kílómetra leið og nærfellt helmingur hennar malarvegur sem oft er ófær að vetrarlagi. Leiðin um Vesturland og Laugarvatn er liðlega 150 kílómetrum lengri, en öll með bundið slitlag og fær allt árið.
Frá Ísafirði liggur stysta leiðin um Djúp, Eyrarfjall, Þorskafjarðarheiði, Svínadal, Bröttubrekku, Hvítárbrú, Uxahryggi og Lyngdalsheiði, sem er nær 470 kílómetrar. Ef farið er um Djúp, Eyrarfjall, Steingrímsfjarðarheiði, Holtavörðuheiði, Borgarfjarðarbrú, Hvalfjarðargöng og svo Hellisheiði og Grímsnes, er ferðin um 120 kílómetrum lengri, en nær öll með bundið slitlag og greifærari.
