Styrkir

Styrkir Sjúkrasjóðs BHM

Sjúkrasjóður er eingöngu fyrir félagsmenn á almennum vinnumarkaði - opinberir starfsmenn eru aðilar að Styrktarsjóði BHM

Réttur sjóðfélaga til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hafi verið sjúkrasjóðsframlag vegna sjóðfélaga samtals í 6 mánuði og þar af 3 mánuði samfellt áður en tekjutap eða útgjöld, sem veita rétt til styrks úr sjóðnum, áttu sér stað, sjá nánar í úthlutunarreglum.  Sótt er um eftirtalda styrki með því að senda inn rafræna umsókn til sjóðsins auk fylgiskjala í frumriti.

1.  Líkamsrækt

Veittir eru styrkir vegna íþróttaiðkana að hámarki kr. 25.000 á hverju almanaksári.

2.  Gleraugu, linsur, laseraðgerðir  og heyrnartæki

  1. Gleraugu, linsur.  Veittir eru styrkir til kaupa á gleraugum eða linsum einu sinni á hverjum 36 mánuðum að hámarki             kr. 30.000.
  2. Laser.  Veittur er staðlaður styrkur að fjárhæð kr. 50.000 vegna “laser aðgerða” á öðru auga eða kr. 100.000 á báðum augum.
  3. Heyrnartæki. Veittir eru styrkir til kaupa á heyrnartækjum einu sinni á hverjum 36 mánuðum að hámarki kr. 150.000.

3.  Meðferðir á líkama og sál

  1. Endurgreitt er að hámarki kr. 40.000 á ári fyrir meðferð hjá sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa, sjúkranuddara, sálfræðingi, hjúkrunarfræðingi, félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa kiropraktor eða sambærilegum faglega viðkenndum meðferðaraðila.
  2. Göngugreining/Innlegg: Greiddur er 75% kostnaðar, þó að hámarki kr. 15.000 á ári vegna göngugreiningar og innleggja.

4.  Hjartavernd

Sjóðurinn endurgreiðir að fullu kostnað vegna áhættumats hjá Rannsóknastöð Hjartaverndar.

5.  Krabbameinsleit

Sjóðurinn endurgreiðir að fullu kostnað vegna reglubundinnar leitar á brjósta- og leghálskrabbameini.  Þurfi sjóðfélagi að fara í framhaldsrannsókn greiðir sjóðurinn þann kostnað einnig, að hámarki kr. 10.000. Ennfremur er greitt vegna krabbameinsskoðunar í ristli að hámarki kr. 10.000, sama gildir um skoðun á  blöðruhálskirtli.

6.  Glasa- og tæknifrjóvgun

Greitt er 30% af reikningi vegna tækni- eða glasafrjóvgunarmeðferða (lyf ekki innifalin). Hámarksstyrkur er kr. 120.000  á almanaksári.

7. Tannviðgerðir

Greidd eru 30% af útlögðum kostnaði vegna tannviðgerða (hreinar fegrunaraðgerðir undanskildar) ef kostnaður er umfram            kr. 75.000 (fyrir hverja umsókn).  Hámarksstyrkur er þó kr. 200.000 almanaksári. 

8.  Dvöl á dvalar- eða heilsustofnun NLFÍ að læknisráði

Greiddur er styrkur til dvalar á dvalar- og heilsustofnun NLFÍ  að læknisráði að hámarki kr. 50.000 á ári. 

9.  Námskeið til að hætta að reykja

Endurgreiddur er kostnaður vegna námskeiða til að hætta að reykja að hámarki kr. 30.000 á tveimur árum.  Ekki er greitt vegna annarra námskeiða.

10.  Ferðarstyrkur vegna ættleiðingar

Greidd er föst upphæð kr. 150.000 vegna útgjalda við utanför til að sækja barn til ættleiðingar.

11. Heimildarákvæði vegna annars heilbrigðiskostnaðar

Sjóðsstjórn er heimilt að styrkja sérstaklega sjóðfélaga vegna annars heilbrigðiskostnaðar í tengslum við áföll, slys eða sjúkdóma á sama hátt og í liðum hér að framan að hámarki kr. 100.000 á hverjum tveimur árum. Að jafnaði er ekki greitt vegna lyfja- og annars heilbrigðiskostnaðar sem gildir uppí afsláttarkort hjá TR.

12. Heimildarákvæði vegna sérstakra  fjölskylduástæðna

Sjóðstjórn er heimilt: að veita sjóðfélaga sérstakan styrk samkvæmt mati ef hann hefur orðið fyrir verulegu tekjutapi vegna slyss eða sjúkdóms hans, maka eða barna eða fráfalls nákomins.

Úthlutunarreglur Sjúkrasjóðs í heild

styrkumsokn




Flýtival


banner6

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica