Þjónusta BHM
BHM þjónustar 26 aðildarfélög bandalagsins á ýmsan hátt. Þjónusta við einstaklinga fer að langmestu leyti fram hjá aðildarfélögum, þetta á til dæmis við allar fyrirspurnir og þjónustu tengda kjörum, kjarasamningum og rétti. Skrifstofa BHM veitir einstaklingum aðeins þjónustu tengda sjóðum ,námskeiðahaldi og upplýsingagjöf m.a. á þessum vef. Lögfræðiaðstoð fer að öllu leyti gegnum aðildarfélögin og því geta einstaklingar ekki haft samband beint við lögmann BHM. Til vinstri á síðunni er hægt að finna upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði.
