Dagskrá fræðslu

Kjarakönnun BHM 2009

NIðurstöður könnunarinnar má nálgast hér.

 

Málþing: Höfum við efni á fagmennsku?

Morgunverðarmálþing haldið í samvinnu Bandalags háskólamanna og Stofnunar stjórnsýslufræða HÍ

Málþinginu er ætlað að vekja athygli á skyldum sérhæfðra fagstétta gagnvart skjólstæðingum, samfélagi og sjálfum sér og mikilvægi þess að þeim sé gert kleift að rækja þessar skyldur á niðurskurðartímum. Aðhald í rekstri hins opinbera má ekki verða til þess að draga úr gæðum sérhæfðrar þjónustu. Hætta á slíku skapast ef þrengt verður að sí- og endurmenntun og mannekla verður þess valdandi að fagfólki verður gert ókleift að veita sérhæfða þjónustu í samræmi við nýjustu og bestu þekkingu. Er ráðamönnum stætt á því að boða annars vegar umtalsverðan niðurskurð og hins vegar að þjónusta muni haldast óskert?

Lesa meira
 

Starfsdagur um stöðugleikasáttmála

Starfsdagur Bandalags háskólamanna um stöðugleikasáttmála og aðkomu BHM að þjóðfélagsumræðu.

Dags.: mánudagur 2. nóvember 2009

Tími: 14-17

Staður: Borgartún 6, 3. hæð, fundarsalur Ásbrú.

Smelltu hér til að skrá þig á starfsdaginn.

Lesa meira
 

Fjármál á mannamáli

Sparnaður ehf., býður félögum BHM á námskeið í grunnatriðum fjármála.  Unnið er eftir hugmyndafræði Ingólfs H. Ingólfssonar. Sjá www.spara.is .

 

Jafnhliða kynnum við lausnir sem Sparnaður hefur hannað til að hjálpa fólki að ná árangri í fjármálum ásamt kynningu á þýskum lífeyrissjóð sem notið hefur mikilla vinsælda hjá okkur að undanförnu. Sjá www.sparnadur.is .

Sigvaldi Einarsson ráðgjafi Sparnaðar heldur námskeiðið.

 

Dags.:  þriðjudagur 20.október

Staður: Ásbrú, fundarsalur BHM, Borgartúni 6, 3. hæð

Tími: 12 - 13

Boðið verður upp á hádegishressingu í upphafi fundar. Mætið tímanlega.

 

Þáttakendum er í framhaldi boðið í fría einkaráðgjöf.       

 

Námskeiðið er öllum opið.

 

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

 


Flýtival


banner5

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica