Dagskrá fræðslu

Málþing: Höfum við efni á fagmennsku?

Morgunverðarmálþing haldið í samvinnu Bandalags háskólamanna og Stofnunar stjórnsýslufræða HÍ

Málþinginu er ætlað að vekja athygli á skyldum sérhæfðra fagstétta gagnvart skjólstæðingum, samfélagi og sjálfum sér og mikilvægi þess að þeim sé gert kleift að rækja þessar skyldur á niðurskurðartímum. Aðhald í rekstri hins opinbera má ekki verða til þess að draga úr gæðum sérhæfðrar þjónustu. Hætta á slíku skapast ef þrengt verður að sí- og endurmenntun og mannekla verður þess valdandi að fagfólki verður gert ókleift að veita sérhæfða þjónustu í samræmi við nýjustu og bestu þekkingu. Er ráðamönnum stætt á því að boða annars vegar umtalsverðan niðurskurð og hins vegar að þjónusta muni haldast óskert?

Lesa meira
 

Starfsdagur um stöðugleikasáttmála

Starfsdagur Bandalags háskólamanna um stöðugleikasáttmála og aðkomu BHM að þjóðfélagsumræðu.

Dags.: mánudagur 2. nóvember 2009

Tími: 14-17

Staður: Borgartún 6, 3. hæð, fundarsalur Ásbrú.

Smelltu hér til að skrá þig á starfsdaginn.

Lesa meira
 

Fjármál á mannamáli

Sparnaður ehf., býður félögum BHM á námskeið í grunnatriðum fjármála.  Unnið er eftir hugmyndafræði Ingólfs H. Ingólfssonar. Sjá www.spara.is .

 

Jafnhliða kynnum við lausnir sem Sparnaður hefur hannað til að hjálpa fólki að ná árangri í fjármálum ásamt kynningu á þýskum lífeyrissjóð sem notið hefur mikilla vinsælda hjá okkur að undanförnu. Sjá www.sparnadur.is .

Sigvaldi Einarsson ráðgjafi Sparnaðar heldur námskeiðið.

 

Dags.:  þriðjudagur 20.október

Staður: Ásbrú, fundarsalur BHM, Borgartúni 6, 3. hæð

Tími: 12 - 13

Boðið verður upp á hádegishressingu í upphafi fundar. Mætið tímanlega.

 

Þáttakendum er í framhaldi boðið í fría einkaráðgjöf.       

 

Námskeiðið er öllum opið.

 

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið

 

Komdu þér á framfæri

“Ekki lesa atvinnuauglýsingar” er boðskapur námskeiðs sem Andrés Jónsson, almannatengill hefur þróað.

BHM býður félagsmönnum nú upp á námskeið Andrésar:

Fimmtudaginn 24. september kl. 11.30 - 14.00

Fimmdudaginn 1. október kl. 11.30 - 14.00

Fimmtudaginn 15. október kl. 15.30 - 17.00 FULLT

Fimmtudaginn 29. október kl. 15.30-17.00 - Skráðu þig hér

Lesa meira
 


Flýtival


banner9

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica