LSS

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga

Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga LSS var stofnaður með samningi á milli BHM og BSRB fyrir hönd hlutaðeigandi stéttarfélaga annars vegar og hins vegar Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd fjölmargra sveitarfélaga. Samningurinn fól sömuleiðis í sér kjarasamning milli hlutaðeigandi aðila þar sem samið var um skylduaðild starfsmanna í hlutaðeigandi stéttarfélögum.

LSS skiptist í tvær sameignardeildir, almenna deild og valdeild, auk þess séreignardeild. Sjóðfélagar geta valið hvorri sameignardeildinni þeir vilja tilheyra.

Iðgjaldagreiðslur - A deild LSS

Iðgjald er 16,0% af heildarlaunum, þar af greiðir launamaður 4% en atvinnurekandi 12%.

Iðgjaldagreiðslur - V-deild LSS

Lágmarksiðgjald er 12% af öllum launum.  Allt iðgjald umfram 10% er viðbótariðgjald.   Hlutur sjóðfélaga er 4% en að jafnaði er mótframlagið ýmist 11,5% eða 8%.  Mótframlag launagreiðenda fyrir alla starfsmenn sem eiga skylduaðild samkvæmt kjarasamningum að LSS er 11,5%.  Mótframlag launagreiðenda vegna annarra sjóðfélaga, þ.e. þeirra sem ekki eiga skylduaðild að LSS er 8%.

Ellilífeyrir - A-deild LSS

Ellilífeyrir myndast af iðgjöldum og er í raun miðaður við 1,9% af heildarlaunum á hverjum tíma.  Réttur fyrir iðgjöld hvers árs er geymdur verðtryggður hjá sjóðnum.  Miðað er við að taka lífeyris hefjist við 65 ára aldurs.  Sjóðufélagi getur þó byrjað allt frá 60 ára aldri en við það skerðist réttur um 0,5% fyrir hvern mánuð sem hann byrjar fyrir 65 ára aldur.  Á sama hátt bætir hann lífeyrisrétt sinn um 0,8% fyrir hvern mánuð sem hann frestar töku lífeyris.  Sjóðfélagi getur byrjað að taka lífeyri en samhliða haldið áfram að vinna.  Iðgjöld hans renna fyrir þann tíma í S-deild LSS.

Ellilífeyrir -  V-deild LSS

Ellilífeyrir myndast af iðgjöldum og ávöxtun þeirra.  Hann er reiknaður skv. tryggingafræðilegri töflur sem sýnir upphæð mánaðarlegs lífeyris fyrir hvert 10 þúsund króna iðgjald sem greitt er miðað við aldur greiðanda.  Ávinnsla réttinda er aldursbundinn. Réttur fyrir iðgjöld hvers árs er geymdur verðtryggður hjá sjóðnum.  Miðað er við að taka lífeyris hefjist við 65 ára aldur.  Sjóðfélagi getur þó byrjað allt frá 60 ára aldri.  þeim mun fyrr sem taka lífeyris hefst fyrir 65 ára aldur, þeim mun meiri er skerðingin.  Á sama hátt getur félagi aukið lífeyrisrétt sinn með vaxandi hætti fyrir hvern mánuð sem hann frestar töku lífeyris.

Allar frekari upplýsingar um rétt til örork-, maka- og barnalífeyris er að finna á heimasíðu sjóðsins: www.lss.is.



Flýtival


Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica