Sjóðir

Sjóðir

Orlofssjóðir, Sjúkrasjóður, Starfsmenntasjóður, Styrktarssjóður og Vísindasjóðir

Sjúkrasjóður

Sjúkrasjóður BHM er sjóður fyrir félagsmenn sem starfa á almennum markaði.  Sjóðurinn greiðir dagpeninga vegna veikindi sjóðsfélaga þegar veikindarétti er lokið hjá atvinnurekanda og greiðir jafnframt styrk til sjóðsfélaga í forvarnarskyni.  Sótt er um á rafrænu umsóknarblaði á heimasíðu sjóðsins um dagpeninga eða styrki.  Skila þarf læknisvottorði vegna greiðslu dagpeninga en frumritum af reikningum þarf að skila til sjóðsins vegna styrkja. 

Starfsmenntunarsjóður

Starfsmenntunarsjóður BHM styrkir sí- og endurmenntun sjóðsfélaga, s.s. styrk vegna verkefna innanlands sem utan, styrkir fyrir ferðir á ráðstefnur, námskeið, hótel- og gistikostnað svo eitthvað sé nefnt.  Rétturinn er bundinn ákveðna fjárhæð á hverjum tveimur árum.  Réttindi safnast ekki fyrir í sjóðnum.  Sótt er um á rafrænum umsóknareyðublöðum á heimasíðu sjóðsins. Upplýsingar um aðra starfsmenntunarsjóði er að finna á heimasíðum sjóðanna.

Styrktarsjóður

Styrktarsjóður  BHM er sjóður fyrir starfsmenn ríkisins, sveitarfélaga og sjálfseignastofnana.  Sjóðurinn greiðir dagpeninga til sjóðsfélaga þegar veikindarétti lýkur hjá atvinnurekanda.  Jafnframt greiðir sjóðurinn styrki í forvarnarskyni.  Skila þarf læknisvottorðum vegna dagpeninga, en frumrit af reikningum þegar sótt er um styrki.  Sótt er um á rafrænu umsóknarblaði á heimasíðu sjóðsins.

Vísindasjóðir

Í síðstu kjarasamningum aðildarfélaga BHM og ríki, árið 2008, voru greiðslur í vísindasjóði aflagðar.  Vísindasjóðir eru óbreyttir hjá félagsmönnum sem starfa hjá sveitarfélögum og á almennum vinnumarkaði.  Upplýsingar um styrki úr Vísindasjóðum aðildarfélaga innan BHM er að finna á heimasíðum sjóðanna





Flýtival


Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica