Kosning trúnaðarmanna aðildarfélaga BHM
Val trúnaðarmanna ber að tilkynna vinnuveitanda og stjórn stéttarfélags þegar í stað
Trúnaðarmaður er kosinn til 2ja ára í senn en ekki er kveðið á um það í lögum hvernig standa skuli að kosningu. Misjafnt getur verið eftir stéttarfélögum hvernig staðið er að kosningu trúnaðarmanna.
Mikilvægt er að hafa í huga að eftir 2 ár rennur kjörtímabil trúnaðarmanns út. Ef trúnaðarmaður er ekki endurkjörinn missir hann eftir 2 ár þá vernd og réttindi sem hann annars nýtur samkvæmt lögum.
Sum stéttarfélög skilgreina hvenær árs kosning skuli fara fram og skipa sérstaka kjörstjórn eða fulltrúa stéttarfélags sem stýrir framkvæmd kosningar. Yfirleitt sér núverandi trúnaðarmaður um kosningu eftirmanns og ef einn trúnaðaðarmaður er í framboði meta sum stéttarfélög kosningu óþarfa. Þá er stéttarfélögum heimilt að skipa trúnaðarmenn þar sem ekki er hægt að koma við kosningu.
Fjöldaviðmið við kosningu
Fjöldaviðmið félagsmanna á vinnustað vegna kosningar trúnaðarmanns eða trúnaðarmanna er misjafnt eftir því hvort um félagsmenn á almennum markaði er að ræða eða félagsmenn sem starfa hjá hinu opinbera.
Almennur vinnumarkaður
- Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 er heimilt að kjósa trúnaðarmann á hverri vinnustöð þar sem starfa a.m.k. fimm félagsmenn. Í sumum kjarasamningum sem gerðir eru á almennum vinnumarkaði eru fjöldaviðmið skilgreind víðar, það gildir þó ekki um kjarasamning 20 aðildarfélaga BHM og Samtaka atvinnulífsins frá árinu 2008.
Opinber vinnumarkaður (sveitarfélög og ríkisstarfsmenn)
Í lögum um opinbera starfsmenn nr. 94/1986 er fjöldaviðmið víðara og er heimilt að kjósa 2 trúnaðarmenn á vinnustöð þar sem 50 eða fleiri starfa. Samkvæmt fyrrnefndum lögum er heimilt að kjósa trúnaðarmenn fyrir félagssvæði eða hluta þess vegna starfsmanna á vinnustöðvum sem ekki uppfylla skilyrði um lágmarksfjölda. Einstökum stéttarfélögum er heimilt að semja um aðra skipan á vali trúnaðarmanna en að framan greinir. Þá er heimilt að sameinast um trúnaðarmenn ýmist fyrir landssvæði, fleiri en eina stofnun eða milli stéttarfélaga hjá opinberum starfsmönnum.
- Samkvæmt Samkomulagi um trúnaðarmenn hjá ríki, Reykjavíkurborg og ýmsum sjálfseignarstofnunum er heimilt á þeim vinnustöðum þar sem starfsmenn vinna samkvæmt mismunandi vinnutímakerfum að kjósa einn trúnaðarmann hið minnsta fyrir hvert vinnutímakerfi.
Tilkynning um kosningu
Val trúnaðarmanns skal tilkynna vinnuveitanda og stjórn stéttarfélags þegar í stað. Trúnaðarmaður telst ekki fá réttarstöðu og lögbundna vernd trúnaðarmanns nema kosning hans hafi verið tilkynnt vinnuveitanda skriflega og sannanlega. Það er því mjög mikilvægt að kjörnir trúnaðarmenn gæti þess að tilkynningaskyldu sé fylgt eftir.
