Umsóknir um styrki
Umsóknareyðublöð
Rafrænt umsóknaferli er hjá öllum sjóðum BHM (sjúkrasjóði, styrktarsjóði og starfsmenntunarsjóði)
Hjúkrunarfræðingar athugið. Fíh. gengur úr BHM frá og með 1. janúar 2010, frá þeim tíma er ekki tekið við umsóknum félagsmanna Félags ísl. hjúkrunarfræinga í Styrktar -og Sjúkrasjóði BHM.
Þann 9. des. 2009 rann út umsóknarfrestur og sá tími sem hægt er að skila gögnum vegna umsókna í Styrktar -og Sjúkrasjóð BHM, sem miðast við almanaksárið 2009.
Umsóknarfrestur og síðasti skilafrestur gagna fyrir hverja úthlutun úr Styrktarsjóði og Sjúkrasjóði er áfram 9. hvers mánaðar til þess að fá greiðslu 25. sama mánaðar. Þegar sótt er um rafrænt fær umsækjandi staðfestingu á móttöku umsóknar í tölvupósti og þarf þá að prenta út umsóknarnúmerið og senda með gögnum til sjóðsins.
Stjórn Starfsmenntunarsjóðs BHM kemur saman sex sinnum á ári til þess að fjalla um umsóknir: í janúar, mars, maí, júlí, september og nóvember.
Umsóknir verða að hafa borist skrifstofu BHM fyrir 1. þess mánaðar er stjórn kemur saman.
