Upplýsingar
Upplýsingar fyrir félagsmenn í aðildarfélögum BHM vegna núverandi ástands efnahagsmála
Félögin ítreka mikilvægi þess að félagsmenn komi strax upplýsingum til síns stéttarfélags ef netföng breytast.
| Efnisyfirlit | ||
|---|---|---|
| 1. | Uppsagnir | Í núverandi efnahagsástandi þegar spáð er auknu atvinnuleysi og þrengingum á markaði, gæti verið hægt að komast að samkomulagi um breytingar á ráðningarsamningi við launþega frekar en að segja honum upp. Sé fleirum en 10 manns sagt upp á 20 manna vinnustað eða stærri er um hópuppsögn að ræða. Sjá nánar um uppsagnir. |
| 2. | Uppsagnir kjara eða hluta ráðningasamnings | Óski atvinnurekandi eftir því að starfshlutfall starfsmanna sé lækkað þá er mögulegt að semja um lækkun á starfshlutfalli tímabundið og fá greiddar atvinnuleysisbætur upp á það sem á vantar að hluta. Sjá nánar um uppsagnir kjara. |
| 3. | Atvinnuleysisbætur | Sé starfsmanni sagt upp er mikilvægt að skrá sig atvinnulausan strax og tekjum sleppir svo réttindi til bóta skerðist ekki. Sá sem verður fyrir því að missa vinnuna er bent á að hann getur óskað eftir ráðgjöf hjá stéttarfélagi sínu og jafnframt aflað sér frekari upplýsinga hjá Vinnumálastofnun. Sjá nánar um atvinnuleysisbætur. |
| 4. | Aðilaskipti að fyrirtækjum | Þegar annar eignaraðili tekur við starfsemi fyrirtækis gilda aðilaskiptalög en þau tryggja réttindi og kjör launamanna hjá viðkomandi fyrirtæki við slíka yfirfærslu. Sjá nánar um aðilaskipti. |
| Gjaldþrot fyrirtækja | Við gjaldþrot fyrirtækja geta launamenn staðið frammi fyrir því að fá ekki greidd laun á uppsagnarfresti. Fyrstu viðbrögð launamanns eru að hafa samband við sitt stéttarfélag og skrá sig jafnframt á atvinnuleysisskrá. Stéttarfélög aðstoða félagsmenn sína við að lýsa kröfum í búið, sé þess formlega óskað og fylgja þannig málum eftir. Sjá nánar um gjaldþrot fyrirtækja. | |
| 5. | Réttur atvinnulausra gagnvart sjóðum BHM | Félagsmenn í aðildarfélagi BHM halda réttindum í ákveðinn tíma eftir að greiðslum til sjóðanna sleppir. Til að tryggja að réttindi haldi sér þegar félagsmenn verða atvinnulausir þarf að greiða félagsgjald af atvinnuleysisbótum til stéttarfélaganna. Sjá nánar um rétt atvinnualausra. |
| 6. | Atvinnuleit | Hér má finna gagnlegar ábendingar varðandi atvinnuleit, starfsferilskrá og ráðningaskrifstofur. Sjá nánar um atvinnuleit. |
| 7. | Neyðarlög | Um er að ræða samantekt á lögum sem samþykkt voru á Alþingi í haust sem fjalla um m.a. heimild fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs að reiða fram fjármagn til að stofna nýtt fjármálafyrirtæki eða yfirtaka fjármálafyrirtæki eða þrotabú þess í heild eða að hluta. Sjá nánar um neyðarlög. |
| 8. | Tenglar | Hér er að finna ýmsa tengla sem gagnast félagsmönnum. |
Höfundar efnis/samantektar eru:
Maríanna H. Helgadóttir, framkvæmdastjóri FÍN
Ólöf Jóna Tryggvadóttir, skrifstofustjóri Huggarðs
Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur BHM
