Atvinnuleysisbætur
Hér má finna samantekt á helstu upplýsingum er varða atvinnuleysi, þ.m.t. umsóknarferlið, bótarétt, bótatímabil, bótaupphæðir, vinnumarkaðsaðgerðir og bætur samhliða starfi.
Á vefsvæði Vinnumálastofnunar má finna ítarlegar upplýsingar um atvinnuleysisbætur/atvinnuleysistryggingar auk þess sem fjallað er um rétt launafólks til atvinnuleysisbóta í lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006.
Atvinnuleysi og aðild að stéttarfélagi
Sá sem fær greiddar atvinnuleysisbætur getur óskað eftir því að halda áfram að greiða til stéttarfélags síns. Félagsmaður þarf að merkja við reit á umsóknareyðublaði þess efnis og þá sér Vinnumálastofnun um að koma greiðslunni til stéttarfélagsins. Þar með viðhalda félagsmenn rétti sínum til greiðslna úr sjúkrasjóði, styrktarsjóði, starfsmenntasjóði og orlofssjóði. Með því að óska eftir áframhaldandi stéttarfélagsaðild viðheldur félagsmaður mikilvægum áunnum réttindum hvað varðar sjóði og aðra þjónustu frá stéttarfélagi.

