Að sækja um atvinnuleysisbætur og skráning hjá þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar
Hvenær á að skrá sig?
Launþegi ætti ætíð að skrá sig atvinnulausan eigi síðar en daginn eftir að hann hættir að hafa sannanlega tekjur frá atvinnurekanda. Viðkomandi fær greiddar atvinnuleysisbætur frá og með þeim degi sem hann skráir sig fyrst. Mikilvægt er að launþegi skrái sig atvinnulausan strax eftir að hann hættir að hafa tekjur til að forðast skerðingu á atvinnuleysisbótum.
Hvar á að skrá sig?
Greiðslur atvinnuleysisbóta fyrir allt landið fara fram hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar sem staðsett er á Skagaströnd. Umsækjandi um atvinnuleysisbætur snýr sér til þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á sínu svæði til að sækja um atvinnuleysisbætur. Frá og með 1. nóvember er hægt að skrá sig rafrænt á vefssvæði Vinnumálastofnunar. Hér má finna link á rafrænt umsóknareyðublað. Hér má finna upplýsingar um staðsetningu og símanúmer þjónustuskrifstofa. Þar skráir viðkomandi sig í atvinnuleit, fyllir út umsóknareyðublað og skilar inn nauðsynlegum fylgigögnum, þ.m.t. vottvorði frá vinnuveitanda um starfstímabil og starfshlutfall á síðustu 36 mánuðum.
Hvað tekur afgreiðsla langan tíma?
Starfsmenn Greiðslustofu fara yfir umsóknir og meðfylgjandi gögn, meta bótarétt og greiða út atvinnuleysistryggingu ef öll skilyrði eru uppfyllt. Vikulega eru haldnir afgreiðslufundir þar sem umsóknir eru yfirfarnar og afgreiddar. Ef umsókn er samþykkt hefst greiðsla næstu mánaðamót á eftir (að því tilskyldu að umsókn og gögn hafi borist Greiðslustofu fyrir 19. dag mánaðar) en ef afgreiðslu umsóknar er frestað berst umsækjanda bréf þess efnis.
Staðfesting á virkri atvinnuleit
Umsækjendur þurfa að staðfesta atvinnuleit sína mánaðarlega frá 20. - 25. hvers mánaðar til að tryggja greiðslur um mánaðamót. Hægt er að staðfesta atvinnuleit á vefsvæði Vinnumálastofnunar eða með því að hringja/koma á þjónustuskrifstofu. Jafnframt þurfa þeir sem hafa haft tilfallandi vinnu eða eru í hlutastörfum að skila inn launaseðlum fyrir 19. hvers mánaðar.
Bótatímabil og greiðsla atvinnuleysisbóta
Einstaklingur á rétt á bótum fyrir þá daga sem hann er skráður atvinnulaus og hægt er að skrá sig atvinnulausan daginn eftir að launagreiðslur falla niður. Greiðslur atvinnuleysistrygginga fara fram fyrsta virka dag hvers mánaðar.Tímabilið sem greitt er fyrir er frá 20. - 19. hvers mánaðar (Dæmi: Við útborgun 1. júlí er verið að greiða fyrir tímabilið 19. maí - 20. júní).
Samkvæmt VI. kafla laga um atvinnuleysistryggingar er bótatímabilið þrjú ár. Það þýðir að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum getur átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta í alls þrjú ár.
