Atvinnuleysisbætur samhliða vinnu
Starfsmaður sem missir starf sitt að hluta telst hlutfallslega tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar og nemur tryggingarhlutfallið mismun réttar hans hefði hann misst starf sitt að öllu leyti. Ákvæði þetta gildir ekki ef launamaður ákveður sjálfur að minnka starfshlutfall sitt.
Breytingar á starfshlutfalli samkvæmt nýjum breytingum á lögum um atvinnuleysistryggingar
Með breytingum á lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 sem samþykkt voru af Alþingi 13. nóvember 2008 er tryggt að föst laun frá vinnuveitanda koma ekki til skerðingar atvinnuleysisbóta með sama hætti á áður, þegar gert er samkomulag milli starfsmanns og vinnuveitanda um lækkun starfshlutfalls.
Ákvæði þetta gildir til og með 31. desember 2009 og er hugsað sem aðstoð við vinnuveitendur hafi þeir þurft að minnka starfshlutfall starfsmanna vegna sérstakra aðstæðna á vinnumarkaði og þurfa starfsmenn að skila inn staðfestingu frá vinnuveitanda um slíkt með umsókn um atvinnuleysisbætur. Tekjur í hlutastarfinu hafa ekki lengur áhrif á fjárhæð atvinnuleysisbóta. Tekjutendar atvinnuleysisbætur eru kr. 242.636 á mánuði en geta ekki orðið hærri en sem nemur 70% mánaðarlauna og fær starfsmaður í hlutastarfi hlutfall fulltra bóta.
Vert er að benda á að virða þarf lög, kjarasamninga og ráðningasamninga þegar gerðar eru slíkar breytingar á kjörum starfsmanna. Ef uppsagnarferstur starfsmanns er 3 mánuðir þarf að segja upp kjörum, þ.m.t. lækkun á starfshlutfalli, með 3ja mánaða fyrirvara. Starfsmaðurinn gerir þá upp við sig hvort hann unir slíkum breytingum eða ekki.
Dæmi um atvinnuleysisbætur á móti lækkuðu starfshlutfalli
Starfsmaður í 100% starfi með kr. 500 þús. í mánaðarlaun. Vinnuveitandi og starfsmaður komast að samkomulagi um helmingslækkun starfshlutfalls. Laun í 50% starfi eru kr. 250 þús. Starfsmaður fær vottað frá vinnuveitanda að lækkun starfshlutfalls stafi af sérstökum aðstæðum á vinnumarkaði og sækir um atvinnuleysisbætur á móti lækkuðu starfshlutfalli. Launin með bótum eru þá alls kr. 371.318. Starfmaður í þessu dæmi á rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum í 6 mánuði í stað 3ja mánuða áður. Eftir 6 mánuði miðar upphæð bóta við grunnatvinnuleysibætur. Sama gildir um fyrstu 10 daga bótatímabils.
| Starfshlutfall lækkað úr 100% í 50% | |
|---|---|
| Laun í 50% starfi |
250.000 |
| 50% bótaréttur (242.363/2=121.318) |
121.318 |
| Alls |
371.318 |
